Neyðist til að tjá sig vegna kjaftasögu sem varð til í kringum sólmyrkvann í ágúst - „Látið mig í friði“

Villarreal hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna furðulegra frétta um Nicolas Pepe, leikmann félagsins sem áður var á mála hjá Arsenal.

Pepe gekkst undir augnaðgerð í október og missti af fimm leikjum. DAZN greindi frá því að ástæðan hefði verið sú að hann horfði á sólmyrkva í ágúst án þess að nota hlífðargleraugu.

Villarreal segir þetta algjörlega rangt og tekur fram að aðgerðin hafi verið skipulögð fyrir fram vegna augnvandamála sem Pepe hafði glímt við um nokkurt skeið.

Pepe var sjálfur allt annað en sáttur við fréttirnar og lét fjölmiðla heyra það á samfélagsmiðlum.

„Segið frekar að ég hafi farið til tunglsins. Þið fjölmiðlamenn eruð svo óhæfir að það er hræðilegt. Látið mig í friði,“ skrifaði Pepe.

Blaðamaðurinn sem greindi fyrst frá málinu hefur síðan leiðrétt frásögn sína.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab