Bruno Fernandes ekki lengur í viðræðum við United
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur ákveðið að fresta viðræðum um nýjan samning við félagið vegna erfiðrar stöðu liðsins.
Samningur Portúgalans, sem er 32 ára, rennur út næsta sumar en United hefur möguleika á að framlengja hann til ársins 2028.
„Félagið hefur boðið mér nýjan samning og það sýnir að þeir vilja halda mér. En þetta er ekki rétti tíminn til að ræða samningamál. Mikilvægast er að liðið fari aftur að vinna leiki,“ sagði Fernandes.
Hann vísaði jafnframt á bug orðrómi um að hann væri að krefjast hærri launa.
„Ef ég vildi meiri peninga væri ég ekki hér. Ég hefði getað farið eitthvert þar sem ég fengi miklu meira borgað.“
United hefur aðeins unnið einn af fyrstu ellefu deildarleikjum sínum og situr í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗