Sögð óviðeigandi í brúðkaupi stjúpdótturinnar
Fókus
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 09:00
Hjónin Miley og Maxx og parið Billy Ray Cyrus og Elizabeth Hurley. Myndir/Getty Images
Leikkonan Elizabeth Hurley fær það óþvegið frá netverjum vegna klæðaburðar síns í brúðkaupi stjúpdóttur sinnar, söngkonunnar Miley Cyrus.
Elizabeth er í sambandi með föður Miley, kántrísöngvaranum Billy Ray Cyrus.
Sjá einnig: Miley Cyrus er gift og hún og faðir hennar hafa grafið stríðsöxina
Miley og Maxx Morando giftust á sunnudaginn við fallega athöfn. Allir gestir klæddust svörtu og fylgdi Elizabet reglum, en mörgum netverjum þótti kjóllinn sem hún valdi heldur óviðeigandi. Kjóllinn var svartur en gegnsær yfir kviðinn, fleginn og með hárri klauf öðrum megin.
Daily Mail greinir frá málinu og birtir nokkrar myndir af stjörnunni ásamt athugasemdum umræddra netverja.
„Mjög óviðeigandi kjóll,“ sagði einn.
„Þessi kjóll er alls ekki viðeigandi fyrir brúðkaup, hún lítur illa út,“ sagði annar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗