Hugmyndin kviknaði í miðri leit að Hjalta - „Við megum ekki láta lífið hans enda hér“

Foreldrar Hjalta Snæs Árnasonar hafa sett á fót þróunarverkefni sem á að verða að úrræði fyrir „gleymdu börnin“ á Norðurlandi. Hjalti Snær fannst látinn í sjónum við Reykjavík vorið 2025 en á meðan leitinni stóð fengu foreldrar hans hugmynd að úrræðinu. 

Gerður Ósk Hjaltadóttir, móðir Hjalta, lýsti leitinni og úrræðinu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún hefur áður komið í ítarlegt viðtal í Heimildinni þar sem hún lýsti því hvernig einhverfur sonur hennar gekk á veggi allt sitt líf og hans andlegu veikindi.

Sjá einnig: Hjalti Snær sá sem fannst milli Engeyjar og Viðeyjar

Í viðtalinu í Bítinu lýsir Gerður aðdragandanum að andláti Hjalta. Hann hafði verið nauðungarvistaður á Akureyri, þar sem fjölskyldan er búsett, en svo fluttur á Laugarás í Reykjavík. „Þau taka við honum í lyfjamóki. Það er ekkert gert fyrir hann í tvö ár nema dæla í hann lyfjum. Við vonum löngu búin að missa hann, persónuleikann hans, út af læknadópi. Hann hafði aldrei verið í neinu, hann snerti ekki áfengi. Þarna var hann algjör zombie,“ segir Gerður. 

„Svo bara gerist það að hann er þarna, hann vill ekki fá mikla aðstoð, lendir í heilaþvotti hjá einhverjum geðsjúklingi frá Úkraínu sem segist vera munkur. Þetta er mjög súr saga, það var einhver búinn að ná huganum hans, einhver sem hann treysti og trúði. Það var ekki endilega hann sem vildi ekki hjálp, það var verið að segja honum að taka ekki við hjálpinni. Svo gerist það að hann vill fá loksins aðstoð en það einhvern veginn, en hann lendir í, það er hringt í mig og læknir spyr hvort hann sé hjartveikur, nei aldrei kannast við það, hann er sendur í hjartalínurit upp á sjúkrahús.“ 

„Þá kemur í ljós að lyfin sem hann er að taka eru bara yfir öllum mörkum, hann er bara að deyja af læknadópi. Þá er hann tekinn af öllum lyfjum einn tveir og bingó, þá er hann í daga og vikur alltaf að, þarna sá maður glitta í hann.“ Hún var mikið hjá syni sínum og var hann farinn að geta rökrætt á ný og ræða um hvaða maður þetta væri sem var að tala við hann. 

„Þarna fór að koma alls konar aftur, vit. Svo hélt hann aftur að koma til baka og enginn hafði tekið eftir því hvað hann var mikið að koma til baka. Svo þarna á föstudeginum, 22. mars, þá er ég fyrir norðan og átti flug suður á sunnudegi. Þá heyri ég, þegar ég er að tala við hann, eitthvað sem ég hef ekki heyrt í tvö ár, þetta er bara hann. Hann var rosalega vonlaus, búinn að missa trúnna, búinn að öskra á hjálp allan daginn. Búnir að vera neyðarfundir og allt út af honum. Ég var búin að tala við hann í klukkutíma, þá var bankað á dyrnar og hann segir að verið sé að kalla hann á fund.“ Hugsaði hún með sér að nú væri verið að grípa hann. „Svo heyri ég ekkert meir. Fyrr en daginn eftir. Þá hringir löggan, sex um morguninn.“

„Bara sjáumst á mánudaginn“

Hún segir að Hjalti hafi átt samtal við yfirmann á staðnum. „Og hann bara hleypti honum út í helgina,“ segir Gerður. „Bara sjáumst á mánudaginn.“ 

Hjalti fór til ömmu sinnar um kvöldið. „Á bara mjög góða samveru með henni. Hún sér mun á honum, finnst hann vera léttari. En það var enginn sem greip hann.“

Gerður segir að ef Laugarás hefði verið fyrir norðan þá hefði þetta ekki endað svona. Á meðan verið var að leita að Hjalta þá fá þau hjónin hugmynd að úrræði fyrir börn. „Þetta var örugglega sama dag,“ segir hún. „Leitin þann dag var að dvína og það kemur svona brjálað vonleysi. En svo er líka einhver von. Getur verið að einhverjir prestar hafi náð í hann. Við sitjum þarna og erum að reyna að ná áttum. Ég veit ekki nákvæmlega hvað við vorum bara að segja en bara, við megum ekki láta lífið hans enda hér.“

Draumurinn um samfélag á sveitabýli

„Draumurinn er að þetta verði sveitabýli þar sem meðlimirnir eru að vinna með dýr, læra að rækta og verða sjálfsþurftarmenn eða konur, elda frá grunni. Það eru ekkert allir sem vilja vera lögfræðingar. Eins og okkar sonur, draumur hans var að vera sjálfsþurftarmaður, vera bara með sína kind og lifa á náttúrunni.“ Þarna geti ungmenni, 18 ára og eldri, búið eða komið í skemmri tíma. „Svo endar fólk bara sem starfsmenn.“ Þau eru komin með aðsetur á Kristnesi og eru í samstarfi við bændur þar. „Við erum að byrja með smá pilot-hóp, tvisvar í viku, þetta er bara sjálfboðavinna. Það eru fimm skipti komin.“

Alls eru níu manns í hópnum og segir Gerður að tilfinningin sé góð. „Þetta er ótrúlega magnað. Ég er svo þakklát að þetta sé farið af stað,“ segir hún. Langtímaáætlunin sé að Hjaltastaðir verði býli, í raun lítið samfélag. „Okkur vantar sveitabýli.“ 

Hér má finna frekari upplýsingar um Hjaltastaði

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab