Burger King snýr aftur til Íslands

Burger King og 1954 ehf. hafa gert samning um uppbyggingu og rekstur Burger King-veitingastaða á Íslandi. Samkvæmt samningnum er stefnt að opnun fimm veitingastaða á næstu fimm árum. Áætlað er að fyrsti staðurinn opni vorið 2027 á þjónustustöð N1 við Bíldshöfða í Reykjavík.

Burger King var áður á Íslandi frá 2004 til 2008, lokaði hann stuttu eftir hrun. 

Fram kemur í tilkynningu að félagið 1954 ehf. hafi tryggt sér sérleyfi Burger King á Íslandi. Að félaginu standa N1 og Skúli Gunnar Sigfússon, sem hefur áralanga reynslu af veitingarekstri á Íslandi.

„Margir Íslendingar muna eftir Burger King frá fyrri tíð hér á landi og enn fleiri þekkja vörumerkið úr ferðalögum erlendis. Við erum stolt af því að færa Burger King aftur til Íslands og trúum því að viðskiptavinir muni kunna vel að meta hið einkennandi bragð af logagrilluðum WHOPPER®-hamborgurum. Við hlökkum til að byggja upp öflugt teymi starfsfólks og skapa framúrskarandi upplifun fyrir gesti okkar, bæði á veitingastöðunum og í stafrænum þjónustuleiðum,“ segir Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1.

Fyrsti veitingastaðurinn verður á þjónustustöð N1 við Bíldshöfða og mun bjóða upp á bæði veitingasölu inni á staðnum og bílalúgu. Staðsetningin er við eina af helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins og býður því upp á gott aðgengi fyrir viðskiptavini, hvort sem þeir vilja njóta máltíðar á staðnum eða grípa með sér logagrillaðan hamborgara á ferðinni.

„Við erum stolt af því að færa Burger King til Íslands í samstarfi við 1954 ehf. Við hlökkum til að byggja vörumerkið upp um landið og bjóða íslenskum viðskiptavinum að njóta þess einkennandi logagrillaða bragðsins og þeirrar upplifunar sem Burger King er þekkt fyrir. Samningurinn endurspeglar áherslu okkar á að gera WHOPPER® og aðra vinsæla rétti Burger King aðgengilega fyrir enn fleiri viðskiptavini um allan heim,“ segir Renato Rossi, forstjóri Restaurant Brands International (RBI) fyrir Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku, móðurfélags Burger King.

Undirbúningur að opnun fleiri veitingastaða er þegar hafinn og verða frekari áform kynnt síðar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab