Hyggst svipta Harry og Markle konunglegum titlum þegar hann tekur við krúnunni
Sögusagnir herma að Vilhjálmur Bretaprins hyggist svipta bróður sinn, Harry prins og eiginkonu hans Meghan Markle, konunglegum titlum þeirra þegar Vilhjálmur verður konungur.
Þetta myndi einnig leiða til þess að börn hjónanna, Archie prins (7) og Lilibet prinsessa (5), misstu sína titla, að sögn Tom Sykes í væntanlegri bók hans, The Dukes: Edward VIII, Andrew, and Harry ― the Men Who Undermined the Modern Monarchy.
Sykes, sem sérhæfir sig í málefnum konungsfjölskyldunnar, heldur því fram að Vilhjálmur, vilji að titillinn konungleg hátign (e. Royal Highness) sé bundinn við þá meðlimi konungsfjölskyldunnar sem gegna opinberum skyldum, fremur en að titlarnir gangi sjálfkrafa í arf við fæðingu.
Náinn vinur Vilhjálms mun hafa sagt við Sykes: „Ef þú ert konungsfjölskyldumeðlimur í opinberu starfi, ferðast um landið, sinnir erindrekstri eða opinberum verkefnum, gegnir opinberu hlutverki, hittir fólk, og ferð úr rekkju á rigningardegi í miðri viku til að fara til Sheffield, þá ber þér titillinn Hans/Hennar konunglega tign og þú munt bera titilinn prins eða prinsessa.“
Heimildarmaðurinn hélt því fram að þeir meðlimir konungsfjölskyldunnar sem gegna opinberum störfum myndu einnig fá greiðslur, laun og húsnæði, en tók fram að þeir sem ekki gegna slíkum störfum myndu hvorki fá konunglega titla, húsnæði né sérstök fríðindi.
„Þú verður hins vegar almennur borgari, frjáls til að halda áfram með líf þitt og afla tekna á þann hátt sem þér sýnist,“ bætti heimildarmaðurinn við.
Gangi þessar breytingar eftir munu tvö yngstu börn Vilhjálms og eiginkona hans Katrínar, Charlotte prinsessa (11) og Louis prins (8) geta valið hvort þau vilji gegna opinberum skyldustörfum fyrir konungsfjölskylduna eða stefna að sjálfstæðum starfsferli, að sögn Sykes. Hins vegar er hlutverk elsta sonar hjónanna, Georgs, sem er erfingi krúnunnar á eftir föður sínum „fastmótað og óbreytanlegt“.
Sykes hélt því fram að Vilhjálmur, sem er næstur í erfðaröðinni á eftir föður sínum, Karli III konungi, hafi nú þegar lagt drög að „víðtækri endurskipulagningu“, sem meðal annars felur í sér breytingar á hlutverkum helstu meðlima konungsfjölskyldunnar.
Kensington-höll hefur svarað fyrirspurn þar um með eftirfarandi: „Það er stefna okkar að tjá okkur ekki um bækur eða fullyrðingar sem koma fram í þeim.“
Áætlanir Vilhjálms koma í kjölfar viðtals í í þáttaröðinni The Reluctant Traveler á Apple TV+ þar sem hann sagði að breytingar væru framundan hjá sér:
„Breytingar til hins betra, ég fagna þeim og nýt þeirra. Ég óttast þær ekki; það sem heillar mig er einmitt hugmyndin um að geta komið á breytingum,“ sagði hann. Hann tók fram að hann hygðist áfram virða hefðir, en jafnframt breyta þeim sem „eiga kannski ekki lengur erindi við nútímann.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗