Rottur herja á eitt ríkasta hverfi Chicago – Íbúar beina sjónum sínum að auðugum hjónum

Pressan

Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 10:12

Rotta í New York-borg Mynd/Wikipedia

Íbúar í einu auðugasta hverfi Chicago í Bandaríkjunum hafa fengið sig fullsadda af rottugangi sem hefur gert þeim lífið leitt undanfarna mánuði.

Margir þeirra telja sig vita hverjum sé um að kenna og beina sjónum sínum að vellauðugum hjónum sem búa í hverfinu. New York Times fjallar um þetta óvenjulega mál.

Undanfarna mánuði hafa dularfullir einstaklingar með töskur fullar af hnetum sést á öllum tímum sólarhringsins í almenningsgarðinum Lincoln Park. Þar dreifa þeir hnetum við tré og eru sumir þeirra sagðir bregðast illa við athugasemdum íbúa.

Á sama tíma hefur rottugangur aukist til muna. Íbúar hafa dregið úr lautarferðum í garðinum og eru sumir hættir að leyfa börnum sínum að ganga þar berfættum.

Nágrannar auðmannsins Barre Seid og eiginkonu hans, Barböru, höfðu áður kvartað undan því að dýrum væri gefið að borða við heimili hjónanna.

Þeir segja að Barbara hafi lagt hnetur á verönd við heimilið. Íkornar og dúfur hafi sótt þangað í æti en rotturnar ekki látið sig vanta.

Eftirlitsmenn borgarinnar hafa að sögn verið sendir oft að heimili hjónanna og hefur Seid tvívegis fengið sekt. Telja íbúar að hjónin hafi fengið fólk til að dreifa hnetum í almenningsgarðinum.

Caroline Novak, læknir sem býr í hverfinu, segist eitt sinn hafa séð einstakling yfirgefa heimili hjónanna með tösku og dreifa í kjölfarið hnetum, þar á meðal valhnetum, í garðinum.

Matt Frye, sérfræðingur í meindýravörnum við Cornell-háskóla, segir að ein stór hneta geti dugað rottu í um sólarhring.

„Því meira sem þú fóðrar rottur, þeim mun líklegra er að þær fjölgi sér,“ segir hann.

Borgaryfirvöld staðfesta að þau hafi tengt einstaklinga við heimilisfang hjónanna við hnetudreifinguna í garðinum. Þau telja þó ekki að hjónin beri meginábyrgð á rottuvandanum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab