Nýr íslenskur samfélagsmiðill uppsögn að þakka

Snorri og Ragna standa að Alvildu.

Snorri og Ragna standa að Alvildu. Ljósmynd/Aðsend

Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason opnuðu fyrir nokkrum mánuðum íslenska samfélagsmiðilinn Alvildu. Hugmyndin varð til eftir að Snorra var sagt upp starfi sínu sem kerfisarkitekt hjá Facebook, þar sem hann hafði starfað í tólf ár.

„Þá kviknaði þessi hugmynd eiginlega, að við gætum gert betra Facebook en Facebook,“ segir hann.

Alvilda fór fyrst í loftið sem smáforrit undir lok sumars en á föstudaginn var opnað nýtt vefviðmót miðilsins. Við skráningu þurfa notendur að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

Markmið hjónanna er að skapa íslenskan vettvang fyrir upplýsingar, viðburði og samfélagsumræðu án þess að reiða sig á erlenda skýjaþjónustu eða nýta gögn notenda í auglýsingakerfi og til gervigreindarþjálfunar.

Voðalega gaman fyrstu árin

Spurður hvernig hugmyndin hafi kviknað segir Snorri hana hafa orðið til eftir að honum var sagt upp störfum hjá Facebook, þar sem hann starfaði í tólf ár, lengst af í Kísildalnum.

„Þegar ég byrjaði þar fyrir um 14 árum var voðalega gaman, en svo sá maður miðilinn smám saman fara aðrar leiðir en maður hafði átt von á, sérstaklega eftir COVID,“ segir hann.

„Síðan var mér sagt upp, sem var það besta sem gat komið fyrir mig, vegna þess að ég fékk borgað í heilt ár og var hvort sem er að flytja heim, þannig að ég hefði ekki getað haldið áfram að vinna fyrir Facebook. Þá kviknaði þessi hugmynd eiginlega, að við gætum gert betra Facebook en Facebook.“

Hér má sjá notendaviðmót í smáforriti miðilsins.

Hér má sjá notendaviðmót í smáforriti miðilsins. Ljósmynd/Aðsend

Finnur ekki eigin viðburði

Ragna Árný og Snorri segja breytingar á Facebook undanfarin ár hafa vegið þungt í ákvörðuninni um að þróa nýjan samfélagsmiðil. Þau telja notendur í auknum mæli sjá efni sem þeir hafa lítinn áhuga á, á sama tíma og færslur frá vinum og upplýsingar um viðburði fara á mis við þá.

„Maður finnur ekki einu sinni sína eigin viðburði. Maður er til dæmis að keyra í fermingarveislu og getur ekki fundið heimilisfangið eða hvort þetta sé rétti dagurinn og þess háttar,“ segir Snorri.

„Okkur fannst þetta bara vera orðið tímabært. Við erum líka búin að skoða þetta frá mörgum sjónarhornum, meðal annars skýrslur og fleira. Þar kemur fram að þróunin sé sú að þessir stóru miðlar séu farnir að breytast í afþreyingarmiðla í stað þess að vera það sem þeir voru upphaflega: staður þar sem maður sér það sem skiptir máli fyrir mann, tengist fólki og hópum og getur bæði boðið fólki á viðburði og séð hvaða viðburðir eru í boði. Okkur finnst því ástæða til að hugsa þetta upp á nýtt og gera hlutina öðruvísi.“

„Við erum ekki beint að keppa við Facebook. Facebook er bara orðið allt annað en það var þegar það byrjaði,“ segir Snorri.

Gögnin vistuð á Íslandi

Undanfarnar vikur hafa fyrirhugaðar breytingar á skilmálum Meta, móðurfélags Facebook og Instagram, vakið umræðu um rétt tæknifyrirtækja til að safna og nýta stafrænt efni. Þótt Meta hafi frestað breytingunum hafa þær vakið spurningar um yfirráð erlendra fyrirtækja yfir upplýsingum og efni á netinu.

Persónuvernd og meðferð notendagagna eru meðal þeirra þátta sem Ragna Árný og Snorri segjast hafa haft í huga við þróun Alvildu.

„Við erum meðal annars að nota rafræn skilríki, sem gerir okkur kleift að takmarka aðgang barna að miðlinum. Sömuleiðis fær enginn aðgang að myndunum þínum nema þú leyfir það. Þú getur til dæmis verið með lokaðan hóp með myndum af ungabörnum og öðru slíku, sem margir eru hættir að vilja setja inn á Facebook,“ segir Ragna.

Þau segja öll gögn miðilsins vistuð á Íslandi, á eigin netþjónum.

„Upphaflega var þetta ekki endilega stærsti áherslupunkturinn, en heimsmyndin hefur breyst svo mikið frá því við byrjuðum á þessu fyrir um 18 mánuðum. Þetta er farið að skipta fólk miklu meira máli. Það skiptir líka máli að ef eitthvað kemur upp á séu hlutirnir hérna heima og að við séum með þessa stafrænu sjálfbærni,“ segir Ragna.

Ein af lykilhugmyndunum að baki Alvildu er jafnframt að notendur sjái ekki efni frá aðilum sem þeir hafa ekki sjálfir valið að fylgjast með. Þannig birtast þeim færslur frá vinum og úr hópum sem þeir hafa gengið í.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab