Kólnar með slydduéljum vestanlands
Innlent | mbl | 24.11.2026 | 6:03 | Uppfært 10:55
Í dag verða suðaustan 10-18 m/s og skúrir en rigning austanlands. Hitinn verður á bilinu 4 til 9 stig. Það dregur smám saman úr vindi í dag og kólnar vestanlands eftir hádegi með dálitlum slydduéljum.
Á morgun gengur í suðaustan 10-18 m/s suðvestan og vestan til með vætu á köflum. Vindur verður hægari og þurrt annars staðar, en súld eða rigning á Austurlandi. Hitinn verður á bilinu 0 til 7 stig. Annað kvöld bætir í vindinn og víða verður rigning, en vindur verður hægari og úrkomulítið norðaustanlands.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗