Eldur í vinnuskúrum á Völlunum
Innlent | mbl | 24.11.2026 | 7:09 | Uppfært 10:01
Eldur kviknaði í þremur samliggjandi vinnuskúrum á iðnaðarsvæði á Völlunum í Hafnarfirði á tólfta tímanum í gærkvöld.
Að sögn Guðjóns Ingasonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, barst tilkynning um eldinn um klukkan 23.40 í gærkvöld og voru tveir dælubílar sendir á vettvang.
Guðjón segir að það hafi tekið slökkviliðið smá tíma að komast að skúrunum þar sem svæðið var afgirt en það hafi tekið um hálftíma að ráða niðurlögum eldsins. Hann segir að skemmdir séu miklar og vinnuskúrarnir séu meira eða minna ónýtir.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗