Persónulegar aðstæður breyttust í bilaðan bát
Sérstakt samkomulag sem gert var í tengslum við sölu Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Flokks fólksins, og eiginkonu hans á meirihluta í strandveiðiútgerðinni Sleppu ehf. í apríl í fyrra gerði ráð fyrir að félagið sjálft greiddi þeim tíu milljónir króna og afhenti þeim skuldabréf fyrir sextán milljónir til viðbótar.
Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2025, sem skilað var á þessu ári, er hins vegar ekki að sjá að fyrirhugað skulduppgjör hafi komið til framkvæmda með þeim hætti sem lýst var í samkomulaginu.
Í blaði gærdagsins var greint frá því að kaupum ungrar konu á 51% hlut í Sleppu hefði verið rift í mars síðastliðnum. Samkvæmt undirrituðu riftunarsamkomulagi var kaupverðið aðeins 255 þúsund krónur og hafði aldrei verið greitt. Það stangast á við yfirlýsingar Sigurjóns í samtali við Vísi í júní í fyrra, þegar hann sagðist hafa fengið greiddar 16-18 milljónir króna fyrir eignarhlut sinn.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗