Stór ákvörðun fram undan hjá Liverpool

Alisson hefur verið einn besti markvörður heims síðustu ár.

Alisson hefur verið einn besti markvörður heims síðustu ár. AFP/Yasin Akgul

Enska knattspyrnufélagið Liverpool stendur frammi fyrir mikilvægri ákvörðun um framtíð markvarðarins Alisson Becker, en hann verður samningslaus næsta sumar.

Caught Offside greinir frá en Ítalíumeistarar Inter Mílanó fylgjast grannt með stöðu Brasilíumannsins og vilja fá hann á frjálsri sölu þegar samningur hans rennur út. Juventus og fleiri stórlið fylgjast einnig með stöðu markvarðarins.

Alisson er 34 ára og hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Liverpool frá því hann kom til félagsins frá Roma árið 2018. Hann hefur tvívegis orðið Englandsmeistari með Liverpool og einu sinni unnið Meistaradeild Evrópu.

Ekkert samkomulag hefur enn náðst um framlengingu á samningi Alisson. Liverpool gæti því staðið frammi fyrir því að missa einn besta markvörð heims án þess að fá krónu fyrir hann.

Alisson hefur þó sjálfur gefið í skyn að hann vilji halda áfram í Bítlaborginni. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab