„Vá, ég hefði aldrei getað þetta í gær“
Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir eru liðsfélagar hjá Kristianstad og landsliðinu. Ljósmynd/Kristianstad
Guðný Árnadóttir bjóst ekki við því að komast jafnhratt inn í leikinn og raun varð á þegar hún sneri aftur með Kristianstad í sænska fótboltanum eftir barnsburð.
Landsliðskonan eignaðist dóttur 18. apríl og hóf keppni á ný 13. september. Hún kom inn á sem bakvörður í fyrstu þremur leikjunum en hefur síðan leikið fimm leiki frá upphafi til enda í miðverði.
„Manni líður eiginlega eins og maður hafi ekkert hætt. Það gleymist mjög fljótt að það hafi verið komið ár frá því maður spilaði leik,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið.
Hún hætti snemma að spila á meðgöngunni og gat ekki hlaupið í marga mánuði. Hún hjólaði og lyfti en sagði erfiðast að ná hlaupþolinu aftur.
„Suma daga hugsaði ég að ég gæti ekkert hlaupið aftur, hvað þá heilan fótboltaleik. En þegar maður er loksins kominn á fullar æfingar með liðinu kemur þetta frekar hratt.“
Guðný setti ekki pressu á sig að snúa aftur fyrir ákveðinn tíma en vonaðist til að geta spilað undir lok tímabilsins. Hún sagði stöðugar framfarir hafa gert endurkomuna skemmtilega.
„Þetta var alltaf upp á við og maður hugsaði: Vá, ég hefði aldrei getað gert þetta í gær. Þetta voru lítil skref sem voru samt svo stór.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗