Ellefu látnir eftir árekstur

Erlent | AFP | 24.11.2026 | 6:46

Ellefu manns létust í slysinu.

Ellefu manns létust í slysinu. Ljósmynd/X

Ellefu manns létust þegar rúta og flutningabíll rákust saman í Ras Al Khaimah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, að sögn yfirvalda í Persaflóaríkinu í dag.

„Rannsókn á tildrögum og orsökum slyssins stendur yfir,“ sagði innanríkisráðuneytið á X-reikningi sínum.

Þetta er annað alvarlega umferðarslysið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í þessum mánuði.

Þann 12. nóvember létust 14 manns og 30 til viðbótar slösuðust í fjöldaárekstri í Fujairah eftir að vörubílstjóri missti stjórn á ökutæki sínu og ók á nokkur önnur ökutæki.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab