„Þeir segja ekki sannleikann“
„Ég er ekkert sérstaklega ánægður með hvað erlendir fréttaritarar á Spáni hafa verið að skrifa. Þeir segja ekki sannleikann, þeir skilja ekki hvernig spænsk stjórnmál virka, þeir hengja sig bara í glansmyndina af Pedro Sánchez [forsætisráðherra].“
Dr. Manuel Arias Maldonado, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Málaga, einn af þekktari stjórnmálaskýrendum spænskra fjölmiðla og fastur dálkahöfundur stórblaðsins El Mundo, hallar sér aftur á bak í stólnum á sólríkri skrifstofu sinni í byggingu lagadeildar háskólans, þar sem stjórnmálafræði er kennd í þessum skóla, og leyfir orðum sínum að síga inn í vitund blaðamanns.
Skólinn er í ellefta hverfi Málaga, Teatinos-Universidad, eins og það heitir, skammt frá hinni gríðarmiklu byggingu héraðsdóms og nokkurra sérdómstóla, Ciudad de la Justicia, Borg réttlætisins. Prófessorinn féllst á að ræða spænsku þingkosningarnar á sunnudaginn við Morgunblaðið og segja örlítið frá spænskri þjóðarsál og hugmyndafræði landans um stjórnmál sem eru ólík því sem við þekkjum norður í álfu.
„Þessir fréttaritarar vísa sífellt til [einræðisherrans Franciscos] Francos og borgarastyrjaldarinnar sem er óskaplega dæmigert og villir erlendum lesendum hreinlega sýn. Ég sé þetta meira að segja í Financial Times og erlendir fjölmiðlar tala alltaf við sömu viðmælendur og heimildarmenn,“ segir prófessorinn.
Dr. Maldonado fyrir framan glæsilegt húsnæði lagadeildarinnar í Teations-hverfinu í Málaga, Facultad de Derecho, en þess má til gamans geta að „derecha“ þýðir hægri á spænsku. Ljósmynd/Unnur Jóhannsdóttir
Hver er þessi Maldonado þá?
Hann lauk lögfræðiprófi frá skólanum í Málaga árið 1997 og doktorsgráðu í stjórnmálafræði þaðan árið 2001 með æðsta láði, hlaut viðurkenninguna Premio Extraordinario de Doctorado fyrir lærdóm sinn, var nýdoktor við Rachel Carson Center for Environment and Society í München í Þýskalandi, stundaði rannsóknir á Fulbright-styrk við Berkeley-háskólann í Kaliforníu og New York-háskóla auk þess að hafa starfað sem gestafræðimaður við Oxford-skólann breska og fleiri háskóla.
Þá hefur Maldonado skrifað fjölda bóka, þar á meðal um lýðskrum og samfélagsmiðla, grunnstoðir lýðræðis, ágreiningsmál spænskra sjálfsstjórnarhéraða og bókina Desde las ruinas del futuro, Úr rústum framtíðar, um það hvernig nýafstaðinn heimsfaraldur reyndi á ríkisvald og einstaklingsfrelsi.
Úr rústum framtíðar, stjórnmálafræði heimsfaraldurs í bók dr. Maldonados sem hefur skrifað þær nokkrar um dagana. Skjáskot/Casa del Libro
Við hófum talið á Sánchez forsætisráðherra sem boðaði til kosninga í október í kjölfar þess er spænska húsnæðiskreppan olli gríðarlegum mótmælum, meðal annars vegna aldraðrar konu sem lést eftir útburð úr leiguíbúð í Madríd, og þingið hafnaði tveimur umbótatillögum forsætisráðherra til handa leigjendum.
Sánchez og umheimurinn
„Umheimurinn dregur upp mynd af Sánchez sem farsælum leiðtoga á meðan hann hegðar sér bara eins og Donald Trump,“ heldur prófessorinn áfram, „hann hefur ekki lagt fram fjárlagafrumvarp í fjögur ár þótt það sé stjórnarskrárbundin skylda hans, er viðriðinn fjölda spillingarmála, sem rædd eru um alla Evrópu, og ræðst harkalega á stjórnarandstöðuna, fjölmiðla og dómara,“ segir Maldonado.
Þá hafi Sánchez notað gömlu konuna í Madríd, Maricarmen Abascal, sem afsökun til að boða til kosninga. „Kosningar hefðu hvort sem er verið haldnar næsta sumar, en hann taldi þennan tíma núna hagstæðastan. Hvers vegna? Næsta sumar verða fleiri lögfræðileg hneykslismál komin fram kringum flokk hans [spænska jafnaðarmannaflokkinn PSOE] og fjölskylduna og í maí eru sveitarstjórnarkosningar.
„Við erum öll Maricarmen“ ritað á katalónsku á mótmælaskilti í Barselóna 11. nóvember, í @-tákninu felst að orðið nær þar með bæði yfir tots (karlkyn) og totes (kvenkyn) í tungumáli Katalóníubúa. Maricarmen var þó úlfur í sauðargæru að sögn Maldonados og nýtti sér hið forna „Renta antigua“-leigufyrirkomulag Francos með frystu leigugjaldi. AFP/Manaure Quintero
Síðast galt PSOE afhroð í þeim alls staðar og Sánchez var kennt um. Hann marði nauman sigur, til dæmis með því að bjóða aðskilnaðarsinnum í Katalóníu sakaruppgjöf. Núna held ég að hann viti að hann muni tapa og vill leyfa flokknum að jafna sig fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Gangi flokki hans betur núna en fyrir fjórum árum á hann þess alla vega kost að verða leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Margir telja þetta vera plottið hjá honum, hann ætli að sitja áfram með argentínsku aðferðinni, hann apar mikið eftir perónistum,“ segir Maldonado og vísar til Juans Peróns, forseta Argentínu í áratugi á síðustu öld, sem leit á valdastöðu sem sinn náttúrulega sess.
„Takmark Pedro Sánchez er bara að vera við völd, hvernig sem hann fer að því,“ segir prófessorinn og kemur að athyglisverðri staðreynd.
„Renta antigua“-samningur Francos
„Þessi kona [Maricarmen] var með húsaleigusamning frá dögum Francos, faðir hennar skrifaði undir leigusamning árið 1956 sem hún gat svo tekið yfir, hann hafði þá borgað 300 evrur í leigu í miðborg Madríd í áratugi,“ segir Maldonado og vísar til „Renta antigua“, leigufyrirkomulags sem einræðisherrann sálugi kom á og gekk út á ævilanga frystingu húsaleigu sem jafnaðarmannastjórn Felipes González afnam með svokölluðum Boyer-tilskipunum um miðjan níunda tuginn og húsaleigulögum 1994, þó með uppsagnarfresti þáverandi leigusamninga.
„Hún var ríkisstarfsmaður og átti peninga. Fyrir 20 árum var henni sagt að hún þyrfti að flytja út vegna þess að Franco-samningurinn væri að renna sitt skeið, en hún neitaði að fara vitandi að spænska dómskerfið væri svo hægfara að hún gæti dvalið mörg ár til viðbótar í þessari íbúð. Það var rétt hjá henni, hún bjó þarna í 20 ár í viðbót. Þetta eru ekki vandamál sem ungt fólk á Spáni stendur frammi fyrir í húsnæðiskreppunni í dag,“ útskýrir stjórnmálafræðingurinn, gamla forréttindakerfi Francos hjálpi ekki ungu fólki á leigumarkaði í dag, heldur skekki markaðinn.
Sánchez hugðist notfæra sér mál Maricarmen sér til framdráttar, „sem hann gerir eftir fjölda hneykslismála innan flokksins, en það mál snerist í höndum hans eftir að hann gerði aðsúg að gráðugum leigusölum og stóreignamönnum og hugðist nota sem kosningamál. Í október komst það í spænska fjölmiðla að kærasti Montse Mínguez, talskonu framkvæmdastjórnar PSOE, ætti eignarhaldsfélag með 30 leiguíbúðum og hefði sjálfur borið út leigjendur,“ segir Maldonado frá.
Pedro Sánchez á kosningafundi í gær, maður sem Maldonado segir enga hugmyndafræði eða hugsjón hafa aðra en að vera við völd og líti forsætisráðherrann þar til argentínska forsetans Juans Peróns á 20. öld sem var þekktur slímusetur við kjötkatlana og taldi sér eðlilegt ástand. AFP/Jorge Guerrero
Mínguez sagði af sér og Sánchez þurfti að breyta um stefnu í kosningabaráttunni. „Hann gat ekki notað húsnæðismálin lengur. Svo hann söðlaði um og segir núna að vinni hægriflokkarnir komi Franco aftur, saga sem vinstriflokkarnir hafa sagt endalaust. Svo varð lestarslysið [28. október] og samgönguráðherra sagði af sér, þá breytti Sánchez stefnumálum sínum aftur, fólk trúði því varla að það væri að gerast aftur,“ segir viðmælandi.
Andi spænskra stjórnmála
Hjálpaðu okkur Íslendingum aðeins að skilja andrúmsloftið í spænskum stjórnmálum, við búum við annan hugsunarhátt og gildi.
„Já, það er nú ekki auðvelt að útskýra, þetta er flókið,“ segir spænski prófessorinn og brosir út í annað, eitt margra brosa í viðtalinu. Maldonado er skemmtilegur viðmælandi, með fræðin á kristalstæru og sykurhúðar ekki staðreyndir. Hann talar hreint út, einn mest áberandi fræðimanna Háskólans í Málaga, gríðarlega eftirsóttur fyrirlesari og glósur úr tímum hjá honum ganga kaupum og sölum á glósuvefjum nemenda, svo sem Wuolah.
„Hér var borgarastyrjöld sem hefur markað þetta land. Við tókum svo upp lýðræði sem hefur verið hagsælt og friðsamt. Jafnaðarmannaflokkurinn var við völd fyrstu fjórtán árin undir stjórn Felipe González. Hann nútímavæddi Spán og færði flokk sinn frá marxisma til skandinavískrar og þýskrar jafnaðarstefnu, yfirgaf það róttæka vinstri sem var einkenni suðurevrópskra vinstriflokka,“ segir hann enn fremur.
„Árið 1996 komst [José María] Aznar svo til valda með PP [hægriflokknum Partido Popular] og svo kom kreppan eftir að [José Luis Rodríguez] Zapatero [þá leiðtogi PSOE] komst til valda á ný, sú sama og þið Íslendingar lentuð í. Þá sprakk húsnæðisbóla sem hafði verið í mikilli þenslu hér. Þetta var mjög erfiður tími og þá komu popúlistar [lýðhyggjuflokkar] fram, eins og Podemos sem var vinstri-lýðhyggjuflokkur, og svo Vox, samtímis Katalóníudeilunni [baráttu sjálfsstjórnarhéraðsins Katalóníu til að lýsa einhliða yfir sjálfstæði og kljúfa sig frá Spáni] róttækur hægriflokkur, róttækari en hægripopúlistarnir myndi ég segja. Zapatero og Sánchez hafa notað borgarastyrjöldina sem pólitískt vopn,“ rifjar prófessorinn upp.
Dr. Maldonado á skrifstofu sinni í lagadeildinni í viðtalinu í gær þar sem hann hristi spænska pólitík saman í snyrtilegan kokteil og fór yfir nánast eina öld á einni klukkustund. Ljósmynd/Unnur Jóhannsdóttir
Þjóðin klofin í fylkingar
Þetta hafi byrjað um 2006 með nýrri lagasetningu auk þess sem vinstriflokkarnir hafi rifjað Franco-tímabilið upp og notað sem grýlu. Með því hafi spænskt samfélag verið skautað, því skipt í fylkingar.
„Þetta er vandamál í stjórnmálakerfi þar sem samkomulag þarf að ríkja milli tveggja stærstu flokkanna. Við erum líka með sautján sjálfsstjórnarhéruð, kerfið hér er órökrétt vegna þess að það verður aldrei fullmótað, fær aldrei endanlega mynd. Þetta breyttist allt mikið með Sánchez sem er eins konar ævintýramaður í stjórnmálum. Hann hefur enga hugmyndafræði, enga sannfæringu. Hann vill bara halda völdum,“ segir Maldonado.
„Og þú veist að hann náði völdum með vantrauststillögu gegn [Mariano] Rajoy [forsætisráðherra Spánar 2011 til 2018] þegar flokkur Sánchez hafði aðeins 85 þingmenn, sem er ekki neitt, og komst til valda með stuðningi þjóðernisflokkanna í Katalóníu og Baskalandi eftir valdaránstilraunina í Katalóníu. Þannig að Sánchez hefur aðeins unnið kosningarnar 2019, reyndar tvisvar á sama ári, en öllum hinum hefur hann tapað,“ heldur hann áfram.
Maldonado segir frá fjölda bandalaga Sánchez við spænska þjóðernisflokka í ýmsum málum, svo sem í sakaruppgjafarmálinu við Katalóníumenn, „sem svipti hann atkvæðum fjölda kjósenda í Katalóníu og Baskalandi“, segir Maldonado, en Baskar hafa einnig haft uppi mikla tilburði til sjálfstæðis, þótt nú sé rórra þar nyrst á Spáni.
Spænski einræðisherrann Francisco Franco Bahamonde stjórnaði Spáni með harðri hendi frá 1939 til 1975, á tímabili sem Spánverjar líta ekki til með söknuði segir dr. Maldonado. Pedro Sánchez og fjöldi vinstrimanna hafa notað Franco sem eins konar grýlu, hann komi aftur kjósi Spánverjar sér hægristjórn. Daufheyrist þjóðin við eður ei? Spyrjum að leikslokum á sunnudaginn, N-29 sem spænskir fjölmiðlar kalla kosningadaginn. Ljósmynd/Wikipedia.org/Biblioteca Virtual de Defensa
Sölsar undir sig stofnanir
„Á sama tíma hefur Sánchez lagt undir sig ríkisstofnanirnar og breytt ríkisútvarpinu og -sjónvarpinu í áróðursvél. Hann ræðst á dómarana og hefur þróað með sér lýðskrumslegan stjórnarstíl. Og þegar honum tókst að mynda ríkisstjórn eftir síðustu kosningar með sakaruppgjöfinni talaði hann meira að segja um múr sem aðskilur góðu Spánverjana, sem kjósa hann, og vondu Spánverjana, sem eru hinir. Þetta eykur skautunina í sífellu. Frá því Sánchez komst til valda hefur andrúmsloftið orðið mjög skautað og fjandsamlegt – við erum orðin bitur,“ segir Maldonado og rödd hans tekur á sig alvarlegan blæ.
Hvern vilja Spánverjar í staðinn? Vilja þeir hægristjórn, hver væri dæmigerður draumur spænskrar þjóðar?
„Honum er ekki til að dreifa,“ svarar prófessorinn og örlar á glotti. „Þú kemur frá örsmáu landi, þar búa færri en hér í Málaga,“ heldur hann áfram og lýgur þar engu, íbúar borgarinnar eru nú nálægt 600.000. „Á Spáni eru skiptar skoðanir eins og annars staðar, 50 prósent þjóðarinnar styðja nú hægriflokka og ég held að 38 prósent styðji vinstriflokka. Svo ertu með þjóðernisflokka í Baskalandi og Katalóníu og meira að segja lítinn þjóðernisflokk hér í Andalúsíu sem gæti náð nokkrum þingsætum núna,“ segir stjórnmálafræðingurinn.
„Á níunda áratugnum, þegar Pedro Almodóvar fór að gera kvikmyndir og menningarlífið blómstraði, talaði enginn um einræðisstjórnina. Hún var algjörlega gleymd. Fjölskyldur ræddu hana ekki, allir horfðu til framtíðar,“ segir prófessorinn af horfnum tíma á öldinni sem leið. Ljósmynd/Unnur Jóhannsdóttir
Aðalmálið á sunnudaginn sé að losna við Sánchez. „Vissulega eru fylgismenn hans ekki sammála því, en þeir styðja hann vilji hann sitja áfram. Jafnvel þjóðernissinnaðir kjósendur í Baskalandi og Katalóníu vilja hann áfram vegna þess að hann hefur gefið þeim sérmeðferð. Við eigum okkur enga draumaríkisstjórn, við erum líklega með meirihluta þjóðarinnar sem styður mið- og hægriflokka, PP og Vox. Við erum líklega með slíkan meirihluta,“ segir hann.
Lokaspurning. Þegar Sovétríkin féllu saknaði margt eldra fólk þar gamla fyrirkomulagsins vegna þess að það vissi að hverju það gekk og þar var eins konar regla áður en allt varð vitlaust með ólígörkum sem náðu til sín gríðarlegum auði í krafti tengsla við stjórnmálamenn. Sakna eldri Spánverjar Francos?
„Nei, nei, nei,“ svarar Maldonado, næstum hneykslaður á órum blaðamanns ofan af Íslandi. „Hér var þetta allt öðruvísi, allt önnur saga sem reyndar hefur ekki verið sögð réttilega erlendis. Einræðisstjórn Francos var mjög hörð frá lokum borgarastyrjaldarinnar 1939 til loka sjötta áratugarins. Á miðjum sjötta áratugnum áttaði Franco sig á því að hann yrði að semja við Bandaríkjamenn,“ segir hann enn fremur.
Neðanjarðarlestarstöðin við „Borg réttlætisins“ í Teations, hina gríðarmiklu byggingu sem hýsir héraðsdóm borgarinnar og ýmsa sérdómstóla. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson
Franco og kalda stríðið
Franco hafi þá farið að gera samningar og runnið inn í kalda stríðið við hlið vesturveldanna. „Svo ræðst hann í mikilvægar efnahagsumbætur árið 1959 og hagvöxtur á Spáni verður gríðarlegur, um sjö prósent á ári á milli 1960 og 1975. Spænskt samfélag tekur stakkaskiptum á þessum tíma,“ segir hann.
Þetta hafi verið tíminn sem fjöldi Spánverja hafi flutt úr smábæjum og þorpum í borgirnar og fólk farið að sækja háskólanám. Lög um fjölmiðla, útgáfu og kvikmyndir hafi verið milduð og gagnrýnar bækur og kvikmyndir farið að líta dagsins ljós.
„Þetta var meira og minna „mjúkt“ einræði frá sjöunda áratugnum til 1975. Þegar Franco lést var lýðræði því óumflýjanlegt, samfélagið var tilbúið fyrir það. Auðvitað var leiðin að lýðræði ekki auðveld, þjóðernissinnar kvörtuðu og kommúnistar líka, en þetta var engu að síður óhjákvæmilegur áfangastaður landsins,“ segir Maldonado.
Hann segir umskiptin yfir í lýðræði hafa verið friðsamleg og skipulögð þótt vissulega hafi komið til ofbeldis af hálfu hryðjuverkahópa á borð við ETA, aðskilnaðarsamtök Baska.
Metstyrkur á þingi
„Árið 1982 komust sósíalistar svo til valda með yfirburðameirihluta, 202 þingmenn af 350, því hefur enginn náð síðan. Á níunda áratugnum, þegar Pedro Almodóvar fór að gera kvikmyndir og menningarlífið blómstraði, talaði enginn um einræðisstjórnina. Hún var algjörlega gleymd. Fjölskyldur ræddu hana ekki, allir horfðu til framtíðar. Og í dag kjósa eldri kjósendur yfirleitt Sánchez á meðan yngri kjósendur kjósa Vox.
Hér er engin fortíðarþrá eftir Franco-tímanum skal ég segja þér. Það sem hefur gerst varðandi einræðisstjórnina er að vinstrivængurinn hefur aldrei hætt að nota hana sem hræðsluáróður til að afla sér atkvæða. Allir mið-hægri stjórnmálamenn frá níunda áratugnum hafa verið stimplaðir sem „francoistar“. Það er alltaf sama tuggan um að Franco muni snúa aftur,“ segir Maldonado og hefur komið inn á það sama áður í þessu spjalli.
Einræðisstjórnin sé ekkert annað en pólitískt vopn vinstri vængsins.
Prófessorinn brosir sínu blíðasta þrátt fyrir að hafa farið rækilega yfir tíma Francos í spænskum stjórnmálum sem hann náði rétt í skottið á, þeir blaðamaður báðir fæddir 1974. Ljósmynd/Unnur Jóhannsdóttir
„Sánchez lét meira að segja grafa líkamsleifar Francos upp og flytja þær frá minnismerkinu þar sem hann var grafinn við Madríd. Það var á fyrstu árum hans í embætti. Þannig að nei, hér ríkir engin fortíðarþrá,“ segir Maldonado um hinn gamla greftrunarstað einræðisherrans í basilíku við bæinn San Lorenzo de El Escorial í Sierra de Guadarrama, um 50 kílómetra frá höfuðborginni Madríd.
Vantreysta Marokkóbúum vegna íslams
Talið berst undir lokin að innflytjendamálum, Maldonado segir útlendinga- og kynþáttahatur ekki áberandi á Spáni.
„Sumir vantreysta Marokkóbúum vegna íslams, aðlögunar og óöryggis, sérstaklega í Katalóníu. En við njótum þeirrar blessunar að flestir innflytjendur okkar koma frá Rómönsku-Ameríku. Þeir aðlagast auðveldlega, vegna tungumálsins og menningarinnar gengur það svo vel fyrir sig. Hins vegar hefur Sánchez sýnt af sér visst ábyrgðarleysi með því að opna dyr Spánar fyrir tveimur milljónum innflytjenda á síðustu fimm árum, án þess að búa landið undir það hvað varðar opinbera þjónustu, innviði, lífeyri og húsnæði. Við erum orðin nærri fimmtíu milljóna manna þjóð með innviði fyrir fjörutíu milljónir. Það er vandamál – og það mun líka verða undir í kosningunum, held ég,“ segir dr. Manuel Arias Maldonado, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Málaga, í lok fróðlegs spjalls um allt frá Franco til Sánchez og spænsku þingkosningarnar á sunnudaginn.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗







