„Ég er alveg nokkrar millur niðri“
Gengi Bitcoin hefur dalað talsvert á undanförnum tveimur misserum en Bergþór segist enn hafa tröllatrú á rafmyntinni. Samsett mynd
Bergþór Másson fatahönnuður segist enn hafa tröllatrú á rafmyntinni Bitcoin.
Athygli vakti þegar hann seldi íbúðina sína og lét söluvirðið allt í rafmyntina fyrir um ári. Rafmyntin hefur rokkað mikið síðan þá og tapað töluverðu af virði sínu eða um 40-50% síðan Bergþór fjárfesti í rafmyntinni.
Bergþór hefur hins vegar trú á því að hún muni taka við sér en játar að hann sé „alveg nokkrar millur niðri“.
Hann bendir réttilega á að Bitcoin hafi tekið kipp upp um 5% í dag þegar hann ræddi við mbl.is fyrr í dag. Sú aukning hefur að hluta til gengið til baka síðan.
Bergþór hefur nú framleitt og hafið sölu á bolum merktum rafmyntinni Bitcoin og segist aldrei ætla að selja hlut sinn í henni.
„Besta ár lífs míns“
„Þetta er bara búið að vera besta ár lífs míns,“ segir Bergþór spurður um hvernig hann líti aftur á tilfærslu peninganna úr íbúðinni yfir í Bitcoin.
„Bitcoin er bara gjöf sem heldur áfram að gefa. Það kennir manni að lífið er upp og niður, hæðir og lægðir og ekkert ferli línulegt.“
Þessu segir Bergþór að hann fái að finna fyrir á hverjum einasta degi þegar hann horfir á tölurnar um gengi Bitcoin. Komi dýfa þýði ekkert annað en að segja: „Áfram gakk, höldum áfram.“
Nú má segja að fjárfestingin liggi niðri en býst þú við því að hún fari aftur upp?
„Já, já. Ég er alveg nokkrar millur niðri, það er ekki spurning. En þetta mun fara upp. Ég hef ekki misst neina trú á því.“
Bergþór segir ekki koma til greina að selja rafmyntina núna. Það hafi aldrei hvarflað að honum að setja peninginn aftur inn á íbúðarlán eða sparnað.
„Ég tók þessa ákvörðun til lengri tíma og hef ekki ennþá fengið gögn sem láta mig gera eitthvað annað eða fengið skilaboð frá æðri mætti um að haga mér öðruvísi.“
Gott að vera á leigumarkaði
Bergþór býr nú í leiguhúsnæði en hann segir vanmetið hversu gott það sé að vera á leigumarkaði.
„Ég elska það. Fólk veit ekki alveg hvað það er næs.“
Bergþór segist upplifa sig mun frjálsari í leiguhúsnæði en í eigin húsnæði. Hann geti farið þaðan þegar hann vilji og þurfi ekki að stressa sig á viðhaldi og „stanslausu rugli og bulli“.
Ábyrgðarleysið á leigumarkaðnum sé meira og það henti hans lífsstíl betur í dag. Það gæti hins vegar breyst seinna.
„Þá mun ég kannski kaupa mér íbúð en ég mun aldrei selja Bitcoinið.“
„Á snekkju skellihlæjandi“
En á endanum þarftu kannski að gera það? Ekki tekurðu það með þér í gröfina?
„Já, þetta er góð spurning. Hvernig verður þetta eftir 20 ár þegar þetta er komið í tíu milljónir dollara? Þá verð ég einhvers staðar á snekkju skellihlæjandi.“
Til samanburðar má nefna að 1 Bitcoin í dag er á pari við um 63.102 bandaríska dollara þegar þetta er skrifað. Upphæðin jafngildir 7,9 milljónum króna.
„Helstu spámennirnir og sérfræðingarnir segja að réttmætt verð Bitcoin verði á endanum 10 milljón dollarar. Það muni staðna þar og haldast stöðugt. Þetta eru þó allt bara getgátur. Og maður veit ekki neitt,“ segir hann.
„En nú er maður bara á fullu að undirbúa Black Friday, sem við köllum Takk Friday,“ bætir Bergþór við og vísar þar til fatamerkisins Takk Takk sem hann stofnaði og rekur ásamt fleirum.
Til marks um tröllatrú Bergþórs á Bitcoin eru nýir bolir frá vörumerkinu sem merktir eru Bitcoin.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

