ÍAV bauð 557 milljónum meira en Ístak

Þetta glæsilega mannvirki mun rísa milli Laugardalshallar og Suðurlandsbrautar.

Þetta glæsilega mannvirki mun rísa milli Laugardalshallar og Suðurlandsbrautar. Tölvumynd/ÍAV

Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) buðu 557 milljónum króna meira en Ístak í hönnun og byggingu Þjóðarhallar. Samið var við ÍAV um að taka að sér verkið.

Tæpt hálft stig réð röð fyrirtækjanna í heildarmati þegar endanleg tilboð voru opnuð 5. mars. ÍAV fékk 94,5208 stig af 100 mögulegum en Ístak 94,0455 stig.

Tilboð ÍAV hljóðaði upp á 16.825,5 milljónir króna en tilboð Ístaks upp á 16.268,4 milljónir.

Hönnun og verð vógu jafnt í matinu, hvort um sig 50 stig. Ístak fékk fullt hús stiga fyrir lægra tilboðsverðið en ÍAV fékk 48,3446 stig. Við mat á hönnun fékk ÍAV 46,1762 stig á móti 44,0455 stigum Ístaks. Rúmlega tveggja stiga forskot ÍAV í hönnun vó því þyngra en forskot Ístaks í verði. Þegar báðir þættir höfðu verið lagðir saman munaði 0,4753 stigum á tilboðunum.

Bæði tilboðin voru yfir uppreiknuðum kostnaðarramma útboðsins, sem nam tæpum 13,7 milljörðum króna. Tilboð ÍAV var tæpum 3,17 milljörðum yfir rammanum og tilboð Ístaks rúmum 2,61 milljarði yfir honum.

Samkvæmt útboðsskilmálum gat Þjóðarhöll ehf. tekið tilboði yfir kostnaðaráætlun ef félaginu tækist að útvega fjármagnið sem upp á vantaði. Það tókst með samþykki eigenda þess í júní um aukið hlutafé inn í Þjóðarhöll ehf. Það var á þeim tíma sem endanlega var ákveðið að ganga til samninga við ÍAV. Verksamningur var undirritaður 30. september sl.

Fjárhagslegt hæfi

  • Eigið fé ÍAV var neikvætt þegar tilboði fyrirtækisins var tekið í júnímánuði
  • Gerð var krafa um að bjóðendur væru með a.m.k. 10% jákvætt eigið fé
  • Eigandi ÍAV hljóp undir bagga 30. júní

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab