Hallalaus fjárlög hamla endurreisn

Pétur segir endurreisn Grindavíkur ekki geta hafist af alvöru fyrr en raunhæfar lausnir finnist á húsnæðismálum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áform ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög á næsta ári kunna að torvelda endurreisn Grindavíkur, að mati Péturs Hafsteins Pálssonar, útgerðarmanns hjá Vísi. Fasteignafélagið Þórkatla kunni að eiga í rekstrarerfiðleikum og lítið viðbótarfjármagn verði að sækja til ríkisins.

„Stjórnvöld stefna á hallalaus fjárlög og því væntanlega ekki mikið fyrir Þórkötlu að sækja til Daða fjármálaráðherra,“ segir Pétur í samtali við Morgunblaðið.

Hann gagnrýnir fyrirætlanir Þórkötlu um að bjóða fyrrverandi eigendum íbúðarhúsnæðis í Grindavík að kaupa eignir sínar aftur á sama verði og félagið greiddi fyrir þær árið 2024. Margir Grindvíkingar hafi þegar skuldsett sig vegna kaupa á öðru húsnæði. Pétur telur mögulegt að fjárþörf Þórkötlu skýri fyrirhugað söluverð. Félagið hafi fengið tjónabætur úr Náttúruhamfarasjóði til að standa straum af rekstri en þær kunni nú að vera uppurnar. Hann segir mikilvægt að Grindvíkingar fái að snúa aftur í hús sín gegn lágmarksgjaldi í stað þess að þurfa að kaupa þau aftur.

Þá segir hann endurreisn Grindavíkur ekki geta hafist fyrir alvöru fyrr en raunhæfar lausnir finnist á húsnæðismálunum. 

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab