Börn Lúðvíks kæra: Ábyrgðin lögð á látinn mann

Frá síðustu björgunaraðgerðum 27. október þar sem sigmenn fóru ofan í sprunguna til leitar að líkamsleifum Lúðvíks. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll ofan í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024, hafa kært ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður sakamál vegna andláts hans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldunni. 

Aðstandendur telja að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi og gagnrýna að ábyrgð á slysinu hafi verið lögð á Lúðvík sjálfan.

Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, er fyrirsvarsmaður aðstandenda og stendur einnig að kærunni, sem send var ríkissaksóknara í gær.

Héraðssaksóknari ákvað 9. nóvember síðastliðinn að fella málið niður. Aðstandendur krefjast þess að ákvörðunin verði felld úr gildi og ákæra gefin út á hendur þeim sem höfðu réttarstöðu sakbornings, eða einhverjum þeirra, fyrir manndráp af gáleysi og brot gegn vinnuverndarlögum.

Þá er farið fram á saksókn á hendur verktakafyrirtækinu sem Lúðvík starfaði hjá, verkfræðistofunni sem hafði umsjón með verkinu og Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ). Til vara er þess krafist að rannsókn málsins verði haldið áfram.

Unnið við opna sprungu án áhættumats

Lúðvík lést 10. janúar 2024 þegar unnið var við sprungu á lóðinni Vesturhópi 29 í Grindavík. Sprungan var undir gafli hússins, sem var á lofti yfir um fjögurra metra djúpri holu.

Samkvæmt upplýsingum aðstandenda hafði NTÍ óskað eftir því í desember 2023 að kannað yrði hvort fylla mætti í sprunguna. Innan við þremur klukkustundum síðar hafi verkið verið afgreitt af hálfu stofnunarinnar.

Í kærunni er bent á að ekkert skriflegt áhættumat, engin öryggis- og heilbrigðisáætlun og engin skrifleg fyrirmæli hafi legið fyrir um framkvæmd verksins.

Verkið hafi verið skipulagt með þeim hætti að þjappa á gröfuarmi yrði notuð, svo starfsmenn þyrftu ekki að vinna á fæti við sprunguna. Búnaðurinn hafi hins vegar verið bilaður en verkinu engu að síður haldið áfram.

Aðstandendur vísa til þess að Vinnueftirlitið hafi meðal annars rakið slysið til skorts á fullnægjandi áhættumati og talið að afleiðingarnar hefðu orðið aðrar ef fyrirhugaður búnaður hefði verið notaður.

Sagður verkstjóri 

Í ákvörðun héraðssaksóknara var lagt til grundvallar að Lúðvík hefði verið verkstjóri á staðnum og því borið ábyrgð á verkinu.

Aðstandendur hafna þeirri niðurstöðu og segja ekkert liggja fyrir um að Lúðvík hafi formlega verið falin verkstjórn. Hvorki hafi verið aflað ráðningarsamnings hans né annarra gagna sem gætu staðfest slíka ábyrgð.

Þeir benda jafnframt á að lýsingin á Lúðvík sem verkstjóra hafi fyrst komið fram í athugasemdum verkfræðistofunnar við drög að skýrslu Vinnueftirlitsins haustið 2024 og síðar í skýrslum þeirra sem höfðu réttarstöðu sakbornings.

Aðstandendur gera einnig athugasemdir við að héraðssaksóknari hafi byggt á framburði eins sakbornings um að skýrt hefði verið tekið fram að aldrei mætti vinna á fæti við sprunguna. Sú lýsing hafi ekki komið fram í tveimur fyrri skýrslum hans sem vitnis.

Allt hafi gerst á fimm dögum 

Aðstandendur gagnrýna jafnframt hversu langan tíma málið var til meðferðar hjá héraðssaksóknara.

Rannsóknargögn bárust embættinu 10. febrúar 2025. Samkvæmt kærunni verður ekki séð af málsgögnum að embættið hafi aflað frekari gagna, tekið skýrslur eða óskað eftir viðbótarrannsókn á þeim tæpa 21 mánuði sem liðu þar til málið var fellt niður.

Þá hafi ákvörðunin verið tekin fimm dögum eftir að fyrirsvarsmaður aðstandenda leitaði beint til héraðssaksóknara og óskaði svara um stöðu málsins.

Aðstandendur gagnrýna einnig að ákvörðun NTÍ um að láta framkvæma verkið hafi ekki verið tekin til sjálfstæðrar rannsóknar. Þeir telja enn fremur að ytri athugun á störfum viðbragðsaðila vegna jarðhræringanna í Grindavík hafi verið afmörkuð þannig að NTÍ, verkfræðistofan og verktakafyrirtækið féllu utan hennar.

„Ábyrgðin lögð á þann eina sem ekki getur svarað“

Þá segir að aðstandendur hafi í nær þrjú ár beðið eftir svörum um aðdraganda slyssins.

„Við höfum í nær þrjú ár beðið eftir svörum um hvers vegna Lúðvík var sendur til vinnu ofan á opna sprungu, án áhættumats og eftir að búnaðurinn sem verkið byggði á hafði bilað. Niðurstaða Héraðssaksóknara varð sú að ábyrgðin var lögð á þann eina sem ekki getur svarað fyrir sig. Við getum ekki sætt okkur við það, og við teljum að almenningur eigi rétt á að vita hvernig þetta mál hefur verið meðhöndlað.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab