Betri veðurspá með nýju líkani: „Stökk í spágæðum“

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að metnaður þeirra sem standa að Bliku sé mjög skýr. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýtt veðurspálíkan Bliku skilar nákvæmari spám um hita og vindhraða en spákerfi Veðurstofu Íslands á langflestum þeim stöðum sem bornir voru saman í prófunum síðustu 30 daga. Líkanið, sem byggir á samspili hefðbundinnar veðurfræði og gervigreindar, verður tekið í notkun í dag.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings, sem stendur að baki veðurvefnum Bliku ásamt Sveini Gauta Einarssyni verkfræðingi. Segir Einar um að ræða „stökk í spágæðum“.

Einar segir spár nýja líkansins bornar saman við mælingar frá 145 veðurstöðvum víðs vegar um landið. Niðurstöðurnar sýna að líkanið skilaði nákvæmari hitaspám en kerfi Veðurstofunnar á 140 stöðvum og nákvæmari vindhraðaspám á 141 stöð. Á þeim fjórum til fimm stöðvum sem eftir standa reyndist munurinn ekki marktækur.

Prófað afturvirkt með eldri gögnum

Einar segir mikla vinnu hafa farið í þróun nýja líkansins frá því í sumar, en það leysir af hólmi líkan sem Blika hefur notast við frá því í maí síðastliðnum.

„Niðurstaðan er blandlíkan sem byggir bæði á hefðbundinni eðlisfræði lofthjúpsins saman með hermigreind. Með því að blanda aðferðunum saman náum við að draga fram kosti hvorrar gerðar líkana,“ segir Einar.

Líkanið hefur verið prófað afturvirkt með gögnum frá árinu 2024 auk þess sem það hefur verið í prufukeyrslu síðustu 30 daga til að meta gæði spánna.

Að sögn Einars sýna niðurstöðurnar jafnframt að nýja líkanið skilar að jafnaði betri spám en það sem Blika hefur notað hingað til.

„Slíkt er auðvelt að mæla og bera saman,“ segir hann.

Nýir vefir nýtast mögulega

Einar víkur í færslunni einnig að því að nokkrir íslenskir veðurvefir hafi litið dagsins ljós að undanförnu.

„Þessa dagana spretta upp nýir veðurvefir eins og gorkúlur,“ segir hann og bætir við að ánægjulegt sé að sjá hugmyndir fólks um hvernig hinn fullkomni veðurvefur eigi að líta út.

Hann segir jafnframt að þessi þróun kunni að nýtast Bliku þegar kemur að framtíðaruppfærslum á vefnum.

„Það fer þó eitthvað minna fyrir nýjum spálíkönum,“ segir Einar.

Hann segir stöðugt unnið að því að bæta gæði veðurspánna og að metnaður þeirra tveggja sem standa að Bliku sé skýr.

„Við tveir sem stöndum að Bliku höfum þann metnað að vera með áreiðanlegustu spárnar fyrir Ísland hverju sinni í allt að 10 daga.“

Tekur Einar fram að þar sé miðað við nákvæmni spáa um hita og vind.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab