Bergrún og Ragnar keyptu 250 milljóna íbúð í nýju heitu hverfi
Bergrún Svava Jónsdóttir og Ragnar Baldursson hafa fest kaup á íbúð í eftirsóttu hverfi. Samsett mynd
Ragnar Baldursson lögmaður og golfari og Bergrún Svava Jónsdóttir ljósmóðir og golfari hafa fest kaup á glæsilegri íbúð í Garðabæ. Íbúðin er við Vorbraut og er 208,1 fm að stærð. Íbúðina keyptu þau eftir að þau settu stórglæsilegt einbýlishús sitt á sölu. Þau keyptu íbúðina af byggingarfélaginu og greiddu 250.000.000 kr. fyrir hana.
Húsið sem Ragnar og Bergrún bjuggu komst í fréttir þegar það fékk hönnunarverðlaun Kópavogs 2018. Björgvin Snæbjörnsson arkitekt hannaði húsið og þótti vel til takast.
Vorbraut er í nýju hverfi í Garðabæ, sem er alveg næsti bær við Kópavog, og því ekki langt að fara á milli. Blokkin er teiknuð af Archus arkitektum en stofan hefur hannað fjölmörg falleg einbýlishús, sumarbústaði og fjölbýlishús. Stofan hannaði fjölbýlishúsin við Naustavör 16-18, Fossvogsveg 8, Löngulínu 9-11 og Lund í Kópavogi svo einhver flott fjölbýlishús séu nefnd.
Bara skemmtilegt fólk
Það flykkist skemmtilegt fólk í þetta nýja hverfi en Smartland greindi frá því að Thelma Fanney Magnúsdóttir sem er með BA-próf í lögfræði og diplómu úr jákvæðri sálfræði hefði fest kaup á íbúð í hverfinu eftir að upp úr ástarsambandi hennar og Jökuls Júlíussonar slitnaði.
Smartland óskar Bergrúnu og Ragnari til hamingju með íbúðina!
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
