Heitir vörnum eftir fregnir af rússneskum kjarnorkugervihnetti
Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segir að bandalagið muni verjast hvers kyns ógnum í geimnum eftir fregnir um að Rússar væru að undirbúa að skjóta á loft gervihnetti búnum kjarnorkuvopni.
BBC greinir frá. Leyniþjónustuskýrslum um mögulegt geimskot á næstu 60 dögum var deilt á milli aðildarríkja NATO í þessum mánuði, samkvæmt þýskum fjölmiðlum.
Vestrænar leyniþjónustur, þar á meðal þýska leyniþjónustan BND og þýski herinn, hafa skipst á upplýsingum sem sýna að gervihnötturinn, sem nefnist Sputnik-S, hafi verið settur saman fyrir nokkrum árum og sé geymdur á Moskvusvæðinu, að því er fram kom í umfjöllun útvarpsstöðvanna NDR og WDR og dagblaðsins Sueddeutsche Zeitung.
Aðspurður um skýrslurnar sagði Rutte: „Við munum ávallt tryggja að við verjum hvern einasta þumlung af yfirráðasvæði NATO, og það felur í sér að tryggja öryggi okkar þegar kemur að geimnum.“
Tilhæulausar ásakanir
Dmitrí Peskov, talsmaður Kremlar, sagðist ekki hafa séð nýjustu fregnirnar en vísaði fregnum sem byggðu á „óþekktum heimildum“ á bug og sagði þær „varla þess virði að taka alvarlega“.
Rússneska sendiráðið í Berlín sagði þýskum fjölmiðlum að það hafnaði því sem það kallaði „tilhæfulausar ásakanir“ og sagði fregnirnar hluta af „áróðursherferð“.
Rutte sagði á blaðamannafundi í Berlín að NATO hefði ýmsa möguleika til að bregðast við.
„Þegar kemur að hernaðarsviðinu munum við ávallt meta fælingarmátt okkar og varnir og gera breytingar þar sem þörf krefur,“ sagði hann.
Friedrich Merz, kanslari Þýskalands hvorki staðfesti né neitaði fregnunum um áform Rússa en sagði þær „sýna hversu langt Rússar eru augljóslega reiðubúnir að ganga í stigmögnun“.
„Fregnir um að Rússar hyggist koma kjarnorkuvopnum fyrir í geimnum eru ekki nýjar af nálinni, en þær eru engu að síður jafn sláandi,“ sagði hann.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗