Ósátt við nýja kærastann

Brooks Nader er ekki alltaf sátt við systur sína, Söruh Jane Nader. AFP/ETHAN MILLER

Baðfatafyrirsætan Brooks Nader er ekki ánægð með systur sína, Söru Jane Nader, og ástarmál hennar. Raunveruleikastjarnan Sarah Jane Nader er sögð vera að slá sér upp með grínistanum Pete Davídson. 

„Ég er ekki sátt við það,“ sagði Neder í viðtali við E! um sambandsorðróminn. „Hún getur gert það sem hún vill en ég er ekki ánægð með þetta.“ 

Stjarnan sagðist ekki vilja tjá sig um hversu lengi Davidson og systir hennar hefðu verið að stinga saman nefjum. „Hún ræðir það ekki við mig. Þegar hún veit að mér líst ekki á einhvern segir hún mér ekki neitt, svo ég kemst að því á netinu,“ sagði Brooks Nader þegar hún var spurð út í meint samband þeirra. Ekkert hefur fengið staðfest um alvarleika sambands þeirra Davidson og Söru Jane Nader. 

Sarah Jane Nader er sögð eiga vingott við Pete Davidson.

Sarah Jane Nader er sögð eiga vingott við Pete Davidson. AFP/DIMITRIOS KAMBOURIS

Heitasti kærastinn í Hollywood

Pete Davidson er þekktur fyrir að vera mikill kvennabósi. Hann eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tæpu ári með fyrirsætunni Elsie Hewitt. Þau hættu hins vegar saman fyrr á árinu. Hann er þekktur fyrir að hafa verið með mörgum frægum konum, þar á meðal eru Kim Kardashian, Emily Ratajkowski, Kaia Gerber, Margaret Qualley, Kate Beckinsale og Phoebe Dynevor. Hann var einnig trúlofaður leik- og söngkonunni Ariönu Grande um nokkurra mánaða skeið árið 2018, en grínistinn fór á skeljarnar eftir aðeins fjögurra vikna samband.

Grínistinn Pete Davidson hefur átt margar frægar kærustur.

Grínistinn Pete Davidson hefur átt margar frægar kærustur. AFP/THEO WARGO

Systur á uppleið 

Systurnar Brooks Nader og Sarah Jane Nader hafa báðar komið fram í raunveruleikaþáttunum Dancing whith the Stars. Þær koma einnig fram í raunveruleikaþáttum sem fjalla um þær. Brooks Nader hefur sömuleiðis gert það gott sem fyrirsæta og leikur í nýjum þáttum um Strandverðina sem verða sýndir árið 2027. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab