Gamalt prestsetur í Eyjafirði orðið að gistihúsi fyrir 28 manns
Núverandi eigendur Prestsetursins í Eyjafirði tóku húsið í gegn en héldu í stíl hússins. Ljósmynd/Prestsetrið
Á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði er aldargamalt prestsetur sem nýtist nú sem gistihús fyrir hópa. Þar geta allt að 28 manns gist í 12 svefnherbergjum og haft húsið og aðstöðuna út af fyrir sig.
Flestir kannast við þetta: Vinahópurinn eða stóra fjölskyldan hefur talað um það árum saman að fara saman í ferð en oftar en ekki verður lítið úr þeim plönum vegna þess að gistingu er erfitt að finna. Sumarbústaðir eru margir of litlir og ef hópurinn ákveður að fara á hótel þá dreifist hópurinn á mörg herbergi og samveran verður minni.
Prestssetrið var byggt árið 1926 og þjónaði sem prestsbústaður í nærri heila öld. Núverandi eigendur réðust í umfangsmiklar endurbætur og húsið var endurbyggt að miklu leyti, með virðingu fyrir upprunalegum stíl þess en jafnframt með nútímaþægindi í huga.
Húsið er aðeins leigt út í heilu lagi, einum hópi í senn. Þar eru 12 svefnherbergi, sex baðherbergi, fullbúið eldhús og rúmgóð borðstofa fyrir allan hópinn, auk slökunaraðstöðu með stórri setlaug og saunu. Við húsið er einnig einstakt yfirbyggt útieldhús með eldofni, grillaðstöðu og langborði.
Prestssetrið er í rúmlega tíu mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri og stutt er í Hlíðarfjall. Eftir dag í brekkunum getur hópurinn slakað á saman í setlauginni og átt gott kvöld yfir sameiginlegri máltíð.
Á sumrin er einnig nóg um að vera enda stutt til Akureyrar og í Skógarböðin. Á góðviðrisdögum má einnig njóta sín í garðinum og gera nákvæmlega ekki neitt.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




