Hefur ekki kysst eiginmanninn í mörg ár – Ástæðan er heldur óvenjuleg

Kona sem hefur verið í sambandi með eiginmanni sínum í 20 ár segist ekki hafa kysst hann í mörg ár. Ástæðan er svo slæm andfýla eiginmannsins að tilhugsunin um að kyssa hann veldur henni ógleði.

Konan leitaði ráða hjá Annalisu Barbieri, ráðgjafa breska dagblaðsins The Guardian, og lýsti því hvernig vandamálið hefur haft sífellt meiri áhrif á hjónabandið.

Að sögn konunnar hefur eiginmaðurinn alltaf verið með slæma andfýlu en ástandið hefur versnað undanfarin ár. Nýlega missti hann tönn sem hann segir að hafi losnað við högg, en konuna grunar að tannholdssjúkdómur sé orsökin.

Hún hefur reynt að fá hann til að fara til tannlæknis en hann er svo hræddur við tannlækna að þegar honum var loks komið í tíma hljóp hann út af stofunni.

Konan segir eiginmanninn reglulega kvarta undan því að hún sýni honum ekki næga ástúð og eigi sjaldan frumkvæði að kynlífi.

„Sannleikurinn er sá að andfýlan fælir mig frá honum,“ segir hún.

Hún segist ekki vilja særa eiginmanninn en sé orðin ráðþrota.

Barbieri leitaði álits sérfræðinga sem hvöttu konuna til að ræða málið af hreinskilni við eiginmanninn.

„Ótti eiginmanns þíns er að gera ykkur bæði að fórnarlömbum,“ sagði sálfræðimeðferðarfræðingurinn Chris Mills.

Tannlæknirinn Neera Maini benti jafnframt á að tannmissirinn gæti bent til langt gengins tannholdssjúkdóms og mikilvægt væri að maðurinn leitaði sér aðstoðar.

Sérfræðingarnir ráðlögðu konunni að hjálpa eiginmanninum að finna tannlækni sem hefði reynslu af því að sinna fólki með mikinn tannlæknaótta.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab