Mikill áhugi á liðsfélaga Alberts
Brentford, Everton, Newcastle og Leeds hafa áhuga á að fá danska landsliðsmanninn Gustav Isaksen frá Lazio í janúar. Teamtalk segir frá.
Isaksen er 25 ára kantmaður sem hefur staðið sig vel á Ítalíu á tímabilinu. Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp tvö í Serie A.
Isaksen hefur mikinn hraða sem er talinn henta enska boltanum vel. Lazio, sem er einnig með Albert Guðmundsson innanborðs, vill þó reyna að halda leikmanninum.
Samningur kappans rennur þó út eftir næstu leiktíð og takist ekki að framlengja hann gæti ítalska félagið alvarlega íhugað að selja hann í janúar eða næsta sumar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗