Framkvæmdastjóri ELKO: „Þangað til reglugerðin tekur gildi er mitt ráð til neytenda einfalt“

Fókus

Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 07:00

Framkvæmdastjóri ELKO með góð ráð.

Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO, segir mikilvægt að neytendur þekki réttindi sín og að verslanir geri þeim auðvelt að nýta þau.

Hann skrifaði pistil á Vísi í gær vegna tilboðsdaganna sem eru fram undan í lok nóvember: Svartur föstudagur þann 27. nóvember og stafrænn mánudagur þann 30. nóvember.

„Fyrir neytendur eru þetta frábær tækifæri til að gera góð kaup fyrir jólin. Þetta eru líka dagar þar sem allt gerist á skömmum tíma, tilboðin eru mörg og auðvelt að missa yfirsýn,“ segir Óttar.

Gerist ekki yfir nóttu

Óttar segir góða tilboðsdaga ekki verða til á einni nóttu. „Hjá smásölum hefst undirbúningurinn yfirleitt snemma árs, með samningum við birgja um magn og verð, skipulagi gámaflutninga með samstarfsaðilum svo vörurnar séu komnar á lager í tæka tíð, markaðsstarfi, mönnun verslana og þjálfun starfsfólks. Öll sú vinna miðar að einu: að viðskiptavinurinn geti verslað með góðri samvisku.“

Að sögn Óttars er gott að hafa tvennt í huga áður en lagt er af stað í tilboðsleit: „Annars vegar hvort afslátturinn sé raunverulegur og hins vegar hvaða rétt maður hefur ef varan stenst ekki væntingar eða jólagjöfin hittir ekki í mark.“

Hvað á Óttar við með „raunverulegt tilboð?“ Hann útskýrir nánar:

„Í Evrópu hefur frá árinu 2022 gilt sú regla að þegar verslun auglýsir verðlækkun skuli fyrra verð miðast við lægsta verð vörunnar síðustu 30 daga fyrir verðlækkunina. Alþingi hefur innleitt regluna í lög hér á landi en útfærsla hennar bíður enn reglugerðar. Á meðan gilda eldri reglur þar sem viðmiðunartímabilið er ekki skilgreint með jafn skýrum hætti. Það getur skapað óvissu, bæði fyrir neytendur og verslanir.

Munurinn kann að virðast lítill en getur skipt miklu máli. Tökum dæmi um sjónvarp sem kostar 200 þúsund krónur í september, fer á tilboð á 150 þúsund í byrjun nóvember, hækkar aftur í 200 þúsund og er svo auglýst á 160 þúsund krónur á svörtum föstudegi. Samkvæmt 30 daga reglunni væri „fyrra verð“ 150 þúsund krónur, en ekki 200 þúsund. Þótt verðið sé lægra en það var í september er það í raun hærra en lægsta verð síðustu 30 daga og því ekki hægt að kynna það sem verðlækkun frá 200 þúsund krónum.

Þetta er einmitt styrkur reglunnar. Hún gefur neytendum einfaldan og sameiginlegan mælikvarða til að meta tilboð og verslunum skýran ramma til að vinna eftir.

Þangað til reglugerðin tekur gildi er mitt ráð til neytenda einfalt: meta vel hvort tilboðið sé í raun og veru tilboð.“

Óttar hvetur líka fólk til að kynna sér skilarétt gaumgæfilega.

„Spurningar sem vert er að spyrja eru til dæmis: Gildir skilarétturinn líka um tilboðsvörur? Er endurgreitt eða aðeins gefin inneignarnóta, og hve lengi gildir hún? Má skila á útsölu? Er hægt að fá skiptimiða á gjafir svo viðtakandinn geti skipt án kvittunar? Og munið að geyma kvittunina, hvort sem hún er á pappír eða rafræn.“

Lestu pistilinn í heild sinni hér.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab