Börn Lúðvíks kæra ákvörðun héraðssaksóknara – „Við getum ekki sætt okkur við það“
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 07:24
Elías, hér til vinstri, segir að almenningur eigi rétt á að vita hvernig málið hefur verið meðhöndlað.
Börn Lúðvíks Péturssonar, sem lést við vinnu sína í Grindavík þann 10. janúar 2024, hafa kært ákvörðun héraðssaksóknara um að fella niður sakamál vegna andláts hans til ríkissaksóknara.
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks og fyrirsvarsmaður aðstandenda, stendur einnig að kærunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Lúðvíks í morgun en kæran var send ríkissaksóknara í gær.
Þess er aðallega krafist að ákvörðun héraðssaksóknara verði felld úr gildi og ákæra gefin út á hendur einum eða fleiri þeirra sem höfðu réttarstöðu sakbornings í málinu fyrir manndráp af gáleysi og brot á vinnuverndarlögum.
Jafnframt er krafist saksóknar á hendur verktakafyrirtækinu sem Lúðvík starfaði hjá, verkfræðistofunni sem hafði umsjón með verkinu og Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ). Til vara er þess krafist að rannsókn málsins verði haldið áfram.
Búnaður bilaður en vinnu haldið áfram
Lúðvík lést við vinnu á lóð Vesturhóps 29 í Grindavík. NTÍ hafði í desember 2023 óskað eftir því við verkfræðistofu að kannað yrði hvort fylla mætti í sprungu undir gafli hússins. Hættustig almannavarna var þá í gildi og töluverð hætta talin vera í Grindavík vegna sprungna og sprunguhreyfinga.
Í kærunni er meðal annars bent á að hvorki hafi legið fyrir skriflegt áhættumat né öryggis- og heilbrigðisáætlun vegna verksins. Þá hafi verkið verið skipulagt með þeim hætti að nota ætti þjöppu á gröfuarmi svo ekki þyrfti að vinna á fæti við sprunguna. Búnaðurinn hafi hins vegar verið bilaður en vinnu engu að síður haldið áfram.
Samkvæmt tilkynningu aðstandenda rakti Vinnueftirlitið slysið meðal annars til þess að fullnægjandi áhættumat hefði ekki legið fyrir.
Hafna því að Lúðvík hafi borið ábyrgð
Aðstandendur gera alvarlegar athugasemdir við þá niðurstöðu héraðssaksóknara að Lúðvík hafi verið verkstjóri á verkstað og því borið ábyrgð á verkinu.
Þeir segja að staða hans hafi aldrei verið rannsökuð með fullnægjandi hætti. Hvorki hafi verið aflað ráðningarsamnings hans né gagna um hvort honum hefði verið falin verkstjórn. Þá telja þeir gögn málsins benda til þess að skipulag verksins hafi verið í höndum verkfræðistofunnar.
Aðstandendur gagnrýna einnig að ekki hafi verið tekin afstaða til ábyrgðar NTÍ sem verkkaupa og að stofnunin, verkfræðistofan og verktakafyrirtækið hafi fallið utan ytri rýni á störfum viðbragðsaðila vegna jarðhræringanna í Grindavík.
Tæpir 21 mánuður hjá héraðssaksóknara
Rannsóknargögn málsins bárust héraðssaksóknara frá lögreglu þann 10. febrúar 2025. Að sögn aðstandenda verður ekki ráðið af málsgögnum að embættið hafi aflað frekari gagna, tekið skýrslur eða óskað eftir viðbótarrannsókn á þeim tæpu 21 mánuði sem leið þar til málið var fellt niður.
Elías leitaði beint til héraðssaksóknara þann 4. nóvember síðastliðinn og fimm dögum síðar var ákvörðun um niðurfellingu málsins tekin.
„Við höfum í nær þrjú ár beðið eftir svörum um hvers vegna Lúðvík var sendur til vinnu ofan á opna sprungu, án áhættumats og eftir að búnaðurinn sem verkið byggði á hafði bilað,“ segir Elías í tilkynningunni.
„Niðurstaða Héraðssaksóknara varð sú að ábyrgðin var lögð á þann eina sem ekki getur svarað fyrir sig. Við getum ekki sætt okkur við það, og við teljum að almenningur eigi rétt á að vita hvernig þetta mál hefur verið meðhöndlað.“
Ekki liggur fyrir hvenær ríkissaksóknari tekur afstöðu til kærunnar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗