Lögregla birti óvenjulega mynd af eftirlýstum glæpamanni

Tyrkneska lögreglan hefur birt óvenjulegar myndir af Hasan Okutan sem er eftirlýstur vegna gruns um fjölda alvarlegra glæpa í Evrópu, þar á meðal morð.

Á myndunum sést Okutan, sem gengur undir viðurnefninu „Napóleon“ í undirheimunum, krjúpa á nærbuxunum einum fata umkringdur grímuklæddum lögreglumönnum.

Þýska blaðið Bild greinir frá málinu og segir myndbirtinguna augljóslega ætlaða til að niðurlægja Okutan og sýna mátt tyrkneskra yfirvalda.

Okutan var handtekinn 13. nóvember í Istanbúl eftir að tyrkneska leyniþjónustan hafði haft uppi á honum. Tveir menn, sem taldir eru tilheyra innsta hring hans, voru einnig handteknir. Við húsleit lagði lögreglan hald á skotvopn, skotfæri og skothelt vesti.

Okutan er á lista Europol yfir eftirlýsta glæpamenn í Evrópu. Hann er meðal annars grunaður um að hafa skotið mann til bana nærri Kaupmannahöfn árið 2019.

Þýsk yfirvöld leita hans einnig vegna gruns um morð, tilraun til manndráps og stórfellda fjárkúgun. Hann er sagður hafa byggt upp glæpanet sem tók að sér að fremja alvarleg afbrot gegn greiðslu.

Bild segir að tyrknesk lögregluyfirvöld hafi áður birt niðurlægjandi myndir af handteknum glæpamönnum í þeim tilgangi að sýna vald sitt. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt slíka háttsemi.

Óvíst er hvort Okutan verði framseldur til Þýskalands eða Danmerkur þar sem tyrknesk lög takmarka mjög framsal eigin ríkisborgara.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab