Valinn í landsliðshóp Klopp 17 ára og nú orðaður við Liverpool

Liverpool hefur mikinn áhuga á Wael Mohya, 17 ára gömlum leikmanni Borussia Monchengladbach. Þýski blaðamaðurinn Christian Falk greinir frá.

Mohya er talinn einn af efnilegri leikmönnum þýska boltans og hefur skorað þrjú mörk í tólf leikjum á tímabilinu. 

Hann ku vera spenntur fyrir skiptum til Liverpool, en núgildandi samningur hans við Gladbach rennur út eftir næstu leiktíð. Félagið vill þó ekki selja í janúar.

Mohya, sem getur leikið fremst á miðjunni og á köntunum, var valinn í landsliðshóp Jurgen Klopp hjá Þýskalandi fyrr í þessum mánuði en spilaði þó ekki. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab