Orðið á götunni: Hvaða lögfræði lærði Hildur? – Hvað breyttist?

Orðið á götunni er að kostulegt sé að fylgjast með þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, hverjum á fætur öðrum, genga nú fram fyrir skjöldu og mótmæla því að lögfesta eigi bókun 35. Það var nefnilega Sjálfstæðisflokkurinn sem fyrst lagði fram þetta frumvarp og barðist á síðasta kjörtímabili fyrir samþykkt þess en án árangurs vegna þess að samstarfsflokkur þeirra í ríkisstjórn, VG, var á móti.

Sjálfstæðismenn settu fram þrenn meginrök fyrir því að samþykkja þyrfti bókun 35: Að tryggja þurfi einstaklingum og fyrirtækjum þau réttindi sem EES-samningurinn á að veita, að Ísland þurfi að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og að breyting á forgangsreglu EES-réttar feli ekki í sér að Alþingi afsali sér löggjafarvaldi. Það eina sem hefur breyst síðan Sjálfstæðismenn lögðu allt kapp á að samþykkja bókun 35 er að nú eru þeir í stjórnarandstöðu.

Þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þáverandi utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins mælti fyrir frumvarpinu 2023 lagði hún áherslu á að bókunin væri skuldbinding sem Ísland hefði þegar gengist undir fyrir um 30 árum, en framkvæmd hennar í íslenskum lögum hefði ekki reynst nægileg.

Hún sagði jafnframt að bókunin fæli ekki í sér framsal löggjafarvalds og hefði ekki áhrif á stöðu stjórnarskrárinnar. Að hennar mati væri óábyrgt að láta málið óleyst og taka einfaldlega afleiðingunum ef ESA höfðaði mál gegn Íslandi. 

Bjarni Benediktsson, þáverandi utanríkisráðherra, sagði í umræðum um skýrslu hans um bókun 35 að gagnrýnendur misskildu tilgang frumvarpsins. Það væri ekki verið að tryggja að EES-réttur gæti alltaf gengið framar vilja Alþingis. Alþingi hefði fullt vald til að setja lög sem gengju gegn EES-skuldbindingum, en yrði þá að taka afleiðingunum í EES-samstarfinu.

Hann lagði áherslu á að Alþingi ætti alltaf síðasta orðið. Hann gagnrýndi jafnframt þá sem töldu breytinguna sjálfkrafa fela í sér stjórnarskrárvanda og kallaði eftir því að þeir skýrðu betur hvort þeir vildu verja EES-samninginn eða hafna honum. 

Diljá Mist Einarsdóttir lýsti afdráttarlausum stuðningi við frumvarpið um bókun 35. Hún sagði að íslenskir borgarar og atvinnulíf ættu að njóta sömu réttinda og aðrir á EES-svæðinu. 

Í mars 2024 gagnrýndi hún sérstaklega þá afstöðu að Íslendingar ættu einfaldlega að sætta sig við að réttindi þeirra væru ekki tryggð og sækja bætur eftir á. Hún vísaði til dóms Hæstaréttar um ófullnægjandi íslenska löggjöf og sagði að þingmenn ættu að leita leiða til að lagfæra hana.

7. júní 2025, eftir að Sjálfstæðisflokkurinn var kominn í stjórnarandstöðu flutti Hildur Sverrisdóttir ítarlega ræðu þar á Alþingi sem hún fór yfir bæði lagaleg og pólitísk rök með frumvarpinu. Hún sagði EES-samninginn eitt mikilvægasta tæki íslensks samfélags til að tryggja samkeppnishæfni, réttindi og tækifæri almennings.

Hún útskýrði að frumvarpið fæli ekki í sér að ESB-reglur tækju sjálfkrafa gildi á Íslandi. Það væri Alþingi sem samþykkti íslensk lög og þau yrðu áfram íslensk þótt fyrirmynd þeirra væri sótt annað. Hún benti á að sama ætti við um mörg íslensk lög sem byggðust á norrænni löggjöf.

Hildur svaraði einnig gagnrýni um að Alþingi yrði „stimpilpúði Brussel“. Hún sagði málið snúast um EES-samninginn, sem Íslendingar hefðu sjálfir ákveðið að eiga aðild að, en ekki aðild að Evrópusambandinu. Alþingi gæti áfram ákveðið að víkja frá forgangi EES-reglna, ef það gerði það skýrt.

Hildur nefndi jafnframt að frumvarpið gæti komið í veg fyrir að einstaklingar og fyrirtæki misstu réttindi vegna þess að síðari íslensk löggjöf skerti þau óafvitandi. Hún taldi að Alþingi ætti sjálft að leysa málið á íslenskum forsendum í stað þess að bíða eftir niðurstöðu ESA og EFTA-dómstólsins.

6. júní 2025 sagði Guðrún Hafsteinsdóttir í þingræðu að bókun 35 styrkti framkvæmd samnings sem Ísland hefði þegar samþykkt, en bætti ekki nýjum reglum inn í íslenskan rétt. Hún hafnaði því að um framsal löggjafarvalds væri að ræða og sagði að reglur ESB giltu ekki á Íslandi nema þær hefðu verið innleiddar og samþykktar af Alþingi.

Hún gagnrýndi þá sem héldu því fram að Ísland væri að lúta erlendu valdi og sagði þá rugla saman innleiðingu og forgangi. Hún lagði áherslu á að bókunin tryggði réttaröryggi, samkeppnishæfni, aðgang íslenskra fyrirtækja að Evrópumarkaði og trúverðugleika Íslands sem samstarfsríkis. Hún kallaði samþykkt hennar „nauðsynlegt og ábyrgt skref.“

Bryndís Haraldsdóttir sagðist í þingræðu 12. júní 2025 hafa stutt málið frá fyrstu umræðu og einnig fyrri ríkisstjórnir og ráðherra sem hefðu lagt það fram. Hún sagði Hæstarétt hafa sýnt fram á að innleiðing bókunarinnar hefði ekki verið fullnægjandi og að Alþingi ætti að bregðast við.

Nú virðast Sjálfstæðismenn á Alþingi ætla að leggjast á sveif með Miðflokknum gegn því að bókun 35 verði lögfest. Hildur Sverrisdóttir, sem er með próf í lögfræði, þykist nú mestur lögspekingur hér á landi og telur það fórna hagsmunum Íslands að lögfesta bókun 35. Út um gluggann er rokin sú skoðun að bókun 35 snúi að því að tryggja Íslendingum sömu réttindin og aðrir íbúar EES hafa. Nú vill hún taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum til að íslenska ríkið geti áfram haft rétt af Íslendingum. Færir lögspekingar segja málstað Íslands í málinu sem ESA hefur höfðað vegna vanefnda á EES samningnum vegna ófullnægjandi innleiðingar bókunar 35 gersamlega tapað. Hæstiréttur Íslands hefur kveðið upp sinn dóm um að bókun 35 er ekki rétt innleidd hér á landi.

Orðið á götunni er Sjálfstæðisflokkurinn hafi misst allan trúverðugleika. Eitt sinn var hann áreiðanlegur þegar kom að hagsmunavörslu Íslands á alþjóðavettvangi. Nú er það liðin tíð

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab