18 ára og sigraði í eftirréttakeppni Fiskmarkaðarins

Alvar Máni Elvarsson, 18 ára matreiðslunemi, sigraði í eftirréttakeppni Fiskmarkaðarins með sítrónuköku eftir uppskrift ömmu sinnar. Samsett mynd

Sítrónukaka eftir uppskrift ömmu matreiðslunemans Alvars Mána Elvarssonar verður jólaeftirréttur Fiskmarkaðarins í ár. Kakan, sem er borin fram með heimagerðu sítrónukremi og litlum pavlovudropum, varð hlutskörpust í árlegri eftirréttakeppni starfsfólks staðarins.

Undanfarin ár hafa kokkar Fiskmarkaðarins keppt sín á milli um hvaða eftirréttur fær heiðurssætið á jólamatseðlinum. Að þessu sinni kom vinningstillagan frá Alvari Mána, sem er 18 ára og stundar nám í matreiðslu.

Tengsl hans við staðinn ná lengra aftur en starfsaldurinn gefur til kynna. Faðir hans, Elvar Már Torfason, hóf störf á Fiskmarkaðnum þegar staðurinn var opnaður árið 2007. Nú hefur uppskrift úr fjölskyldunni ratað á jólamatseðilinn.

Sítróna og stökkir marengsdropar

Í kökunni er sýrður rjómi ásamt sítrónusafa og rifnum sítrónuberki. Hún er skreytt með heimagerðu sítrónukremi, stökkum marengsdropum, hindberjum og sítrónuberki.

Á jólamatseðlinum er meðal annars misógljáður lax, nautatartar, sushi, grilluð langa og Ibérico-svínakjöt. Réttirnir eru bornir fram til að deila en sítrónukaka Alvars Mána slær lokatóninn.

Fiskmarkaðurinn deilir hér uppskriftinni svo lesendur geti spreytt sig á jólaeftirréttinum heima.

Sítrónukaka með sítrónukremi og pavlovudropum

Sítrónukakan er borin fram með heimagerðu sítrónukremi, pavlovudropum og hindberjum og verður jólaeftirréttur Fiskmarkaðarins í ár. Ljósmynd/Aðsend

Sítrónukaka

  • 3¾ dl hveiti
  • ½ tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. matarsódi
  • 120 g smjör, við stofuhita
  • 2½ dl sykur
  • 3 egg
  • 180 g sýrður rjómi
  • Safi úr ½ sítrónu
  • Rifinn börkur af 1 sítrónu

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180 °C með blæstri.
  2. Þeytið smjör og sykur saman í hrærivél þar til blandan er létt og ljós, í um þrjár mínútur.
  3. Bætið einu eggi í einu út í og þeytið vel á milli.
  4. Bætið sýrðum rjóma, sítrónusafa og sítrónuberki saman við og hrærið stuttlega.
  5. Blandið hveiti, lyftidufti og matarsóda saman. Bætið út í deigið og hrærið í um ½–1 mínútu.
  6. Setjið deigið í hringlaga form eða annað form að eigin vali.
  7. Bakið í um 40–50 mínútur. Bökunartíminn fer eftir stærð formsins. Stingið prjóni í miðja kökuna til að kanna hvort hún sé bökuð. Ef hann kemur hreinn upp er kakan tilbúin.
  8. Látið kökuna standa á borði í 10–15 mínútur eftir bakstur. Setjið síðan kökukúpul yfir hana og látið kólna þannig til að halda rakanum í henni.
  9. Látið kökuna kólna áður en sítrónukremið er sett á.

Sítrónukrem

  • 2½ dl flórsykur
  • ¾ dl sítrónusafi, 75 ml
  • 1 egg
  • 40 g smjör
  • Rifinn börkur af 1 sítrónu, ef vill

Aðferð

  1. Þeytið eggið létt með gaffli.
  2. Blandið flórsykri, eggi og sítrónusafa saman í potti. Bætið sítrónuberkinum við ef hann er notaður.
  3. Hitið blönduna að suðumarki en látið hana ekki sjóða. Hitið þar til hún fer að þykkna.
  4. Takið pottinn af hitanum. Bætið smjörinu út í og hrærið þar til það hefur bráðnað saman við.
  5. Kælið sítrónukremið.

Litlir pavlovudropar

  • 4 eggjahvítur
  • 200 g sykur
  • 1 msk. Maizena-maíssterkja
  • 1½ tsk. vanilluþykkni

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 145 °C.
  2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru vel froðukenndar. Bætið sykrinum smátt og smátt út í og stífþeytið.
  3. Bætið maíssterkju og vanilluþykkni saman við og hrærið.
  4. Setjið marengsinn í sprautupoka og sprautið litlum dropum á bökunarpappírsklædda plötu.
  5. Bakið í 40 mínútur.

Skreyting

  • Sítrónukrem
  • Pavlovudropar
  • Hindber
  • Rifinn sítrónubörkur

Dreifið sítrónukreminu yfir kalda kökuna og skreytið með pavlovudropum, hindberjum og rifnum sítrónuberki.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab