Líbíumenn fordæma árás Úkraínumanna
Stjórnvöld í Líbíu hafa fordæmt árásir Úkraínumanna á tvö rússnesk skip við borgina Benghazi og krafist skýringa frá stjórnvöldum í Kænugarði.
Úkraína hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum, sem áttu sér stað í gær, en þær hafa jafnframt vakið áhyggjur Sameinuðu þjóðanna af því að stríð Rússlands og Úkraínu breiðist út til Norður-Afríku.
Fréttastofan AFP greinir frá því að rússneska herskipið Merkury hafi sokkið í árás við höfnina í Benghazi og að flutningaskipið Angara hafi einnig orðið fyrir árás.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti staðfesti fyrr í dag að úkraínskar hersveitir hefðu staðið að árásunum. Hann sagði sjö úkraínsk sjódrón hafa verið notuð og lýsti aðgerðunum sem svari við innrás Rússa í Úkraínu.
Að sögn Úkraínumanna var Angara notað til vopnaflutninga fyrir rússneska herinn. Ekki hefur verið hægt að staðfesta sjálfstætt allar upplýsingar Úkraínumanna um árásirnar.
Krefjast skýringa frá Úkraínu
Utanríkisráðuneyti alþjóðlega viðurkenndrar ríkisstjórnar Líbíu, sem hefur aðsetur í Trípólí, fordæmdi árásirnar í dag og krafðist opinberra skýringa frá Úkraínu.
Ráðuneytið sagði að stríð Rússlands og Úkraínu veitti hvorugum aðilanum rétt til hernaðaraðgerða á líbísku yfirráðasvæði eða í landhelgi landsins.
Þá varaði það við því að hafnir og önnur borgaraleg mannvirki í Líbíu yrðu nýtt í hernaðaraðgerðum erlendra ríkja.
Stjórnvöld í austurhluta Líbíu, sem eru í nánum tengslum við Rússland, hafa einnig fordæmt árásirnar. Þau hafa óskað eftir rannsókn Sameinuðu þjóðanna á því hvort úkraínskar hersveitir hafi verið staðsettar í vesturhluta landsins eða nýtt aðstöðu þar við undirbúning árásanna.
Líbía hefur um árabil verið klofin og eru stjórnir yfir yfirráðasvæðum í austri og vestri. Rússar hafa stutt hersveitir Khalifa Haftar, sem ræður ríkjum í austurhluta landsins.
Sameinuðu þjóðirnar vara við útbreiðslu stríðsins
Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna í Líbíu hefur lýst þungum áhyggjum af árásunum og kallað eftir tafarlausri, óháðri og gagnsærri rannsókn.
Sendinefndin varar við því að Líbía verði vettvangur átaka erlendra ríkja og segir landið ekki mega dragast inn í frekari hernaðarátök.
Rússnesk stjórnvöld hafa enn ekki brugðist við árásunum. Talsmaður Kremlar sagði fyrr í dag að stjórnvöld hefðu tekið eftir yfirlýsingu Selenskís án þess að bregðast frekar við.
Sendiherra Rússlands í Líbíu hefur hins vegar sagt að Moskva skoði hvernig bregðast eigi við árásunum og að þær verði ekki látnar ósvaraðar.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗