Fagnar því að eigið Íslandsmet kunni að falla
Andri Snær Magnason, rithöfundur og heimildagerðarmaður, fagnar því að 17 ára gamalt Íslandsmet sem hann á, metaðsókn á heimildarmynd í íslenskum kvikmyndahúsum, verði sennilega slegið á næstu dögum.
Hann segir mikla grósku ríkja í heimildarmyndagerð á heimsvísu. Nýjasta mynd hans, Um tímann og vatnið, hefur farið sigurför um alþjóðlegar kvikmyndahátíðir og hlotið fjölda tilnefninga og verðlauna.
Aðstandendur íslenskra kvikmyndahúsa spá því að heimildarmyndin You Can See Everything, sem fjallar um svikahrappinn Elizabeth Holmes, muni slá aðsóknarmetið í flokki heimildarmynda á næstu dögum.
Myndin, sem Nathan Fielder og Lance Oppenheim leikstýra, er löng, marglaga og óvenjuleg í forminu en hefur engu að síður farið mikla sigurför um heiminn og hlotið lof gagnrýnenda.
Mjög gott að sjá eigið met falla
Núverandi aðsóknarmet á heimildarmynd í íslenskum kvikmyndahúsum á Draumalandið, sem Andri Snær leikstýrði ásamt Þorfinni Guðnasyni. Myndin, sem kom út árið 2009, byggði á samnefndri bók Andra Snæs um Kárahnjúkavirkjun. Um 16 þúsund manns sáu hana í kvikmyndahúsum.
Spurður hvernig honum líki við tilhugsunina um að metið verði sennilega slegið á næstu dögum segir Andri Snær það gleðiefni.
„Það er náttúrulega mjög gott. Það væri aldrei gaman að lifa á tímum þar sem enginn toppaði metið frá árinu 2008 eða 2009,“ segir hann.
„Ég hef alltaf haft trú á heimildarmyndaforminu og talið að margar bestu myndirnar sem maður sér á hverju ári séu heimildarmyndir. Það gæti vel verið að við séum að upplifa einhvers konar breytingu þar sem fólk hættir að meta myndir út frá því hvort þær séu heimildarmyndir eða ekki. Fólk ruglar stundum saman heimildarmyndum og fræðslumyndum.“
Bíóið að koma til baka
Andri Snær segir árið hafa verið afar sterkt í heimildarmyndagerð. Auk grósku í grasrótinni hafi myndir á borð við You Can See Everything, ísraelsku heimildarmyndina Naza, sem fjallar um framgöngu ísraelska hersins gegn óbreyttum borgurum á Gasa, og American Doctor, um þrjá lækna sem starfa á Gasa, vakið mikla athygli.
„Mér finnst líka eins og bíóið almennt sé komið til baka,“ segir Andri Snær.
„Ég man að fyrir nokkrum árum ætlaði ég í bíó og þá var bara Avengers 5 í boði og ég hafði ekki séð eitt, tvö eða þrjú. Svo ég ákvað einfaldlega að fara ekki í bíó.“
Fannst þau hafa komist í feitt
Nýjasta heimildarmynd Andra Snæs, Um tímann og vatnið, kom út fyrr á þessu ári. Hún byggir á samnefndri bók hans frá árinu 2019 og er framleidd af National Geographic.
Myndin fjallar um loftslagsbreytingar, hnignun jöklanna og samband mannsins við náttúruna, en fléttar jafnframt saman persónulegri fjölskyldusögu Andra Snæs.
Spurður hvers vegna hann hafi ekki látið bókina duga heldur ákveðið að segja söguna einnig í heimildarmynd segir hann verkefnið í raun hafa byrjað sem hugmynd að heimildarmynd.
„Ég tók tvö viðtöl við Dalai Lama árin 2009 og 2010. Síðan tók ég viðtöl við heilan helling af vísindamönnum, meðal annars Lonnie Thompson, sem var einn fremsti jöklavísindamaður heims og er nýlátinn, auk Helga Björnssonar jöklafræðings og fleiri,“ segir hann.
„Ég hafði alltaf í huga að gera heimildarmynd, en hún fór einhvern veginn aldrei af stað. Þegar ég skoðaði efniviðinn sem ég var með var hann einfaldlega svo umfangsmikill að það varð augljóst að bók væri kannski hentugasta formið fyrir mig. Ég hafði tekið viðtöl við vísindamennina, ömmu mína og afa og safnað saman alls kyns efni.“
Bókin hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála. Kvikmyndagerðarkonan Sara Dosa, sem síðar leikstýrði myndinni, hafði samband við Andra Snæ og vildi kynna hugmyndina fyrir National Geographic.
„Þá vissu þau ekki að ég væri með svona mikið myndefni. Þannig að þeim fannst þau hafa komist í feitt,“ segir Andri Snær um tilurð myndarinnar.
Höfðu meiri áhuga á afa og Melrakkasléttu
Spurður um helsta muninn á sögunni í bókinni og heimildarmyndinni segir hann að kvikmyndaformið bjóði ekki upp á að kafa ofan í jafn margar hugmyndir og bókin.
Honum hafi komið á óvart að Dosa, sem er bandarísk, hafi haft meiri áhuga á fjölskyldusögu hans en til dæmis viðtölunum við Dalai Lama.
„Þau höfðu meiri áhuga á afa mínum og Melrakkasléttu. Þetta var kannski dæmi um glöggt gestsauga. Þau völdu frekar hluti sem voru persónulegri og séríslenskari heldur en það sem mér fannst kannski vera stærra og alþjóðlegra út frá mínu sjónarhorni.“
Myndin fari þannig mun meira inn í tilfinningar og missi og samband kynslóðanna.
„Þar er því teflt saman því að missa afa og ömmu, elstu kynslóðina, kynslóðina sem uppgötvaði jöklana, á sama tíma og jöklarnir sjálfir eru að hverfa.“
Ekki meginstraumsmynd
Annað sem kom Andra Snæ á óvart var nálgun framleiðandans og leikstjórans að gerð myndarinnar. Þótt hún sé framleidd af National Geographic sé hún ólík hefðbundnum náttúrulífsmyndum.
„Í stað þess að taka myndir af mér í 8K-gæðum uppi á jökli og sýna stórbrotið umhverfi notum við fullt af heimavídeóum og efni sem er í rauninni miklu nær tilraunaheimildargerð en því sem maður er vanur úr svona fáguðum National Geographic-heimildarmyndum,“ segir Andri Snær.
„Þau voru líka að ýta myndinni í átt að listrænna formi. Þau voru ekki að reyna að gera hefðbundna meginstraumsheimildarmynd.“
Frumsýnd í 53 kvikmyndahúsum
Viðtökur við myndinni hafa farið fram úr væntingum. Hún var sýnd á Sundance-hátíðinni í vor og hefur síðan verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim. Hún er nú einnig aðgengileg á Disney+ og Hulu.
Í síðustu viku hófust sýningar á henni í 53 kvikmyndahúsum í Hollandi.
„Það er mjög sjaldgæft, hvort sem litið er til íslenskra mynda eða heimildarmynda almennt,“ segir Andri Snær.
„Þetta hefur allt verið miklu stærra en ég hafði ímyndað mér. Svo er auðvitað líka einhver Óskarstitringur í kringum þetta, meðal annars vegna fyrri velgengni þeirra sem standa að myndinni.“
Þar vísar hann meðal annars til Söruh Dosa, sem hlaut Óskarstilnefningu fyrir mynd sína Fire of Love, og framleiðandans Shane Boris, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir Navalny.
Um tímann og vatnið hefur þegar unnið til verðlauna á Jackson Wild Media Awards og Wildscreen Panda Awards. Hún hefur auk þess hlotið sex tilnefningar til Cinema Eye Honors. Aðeins tvær myndir, You Can See Everything og American Doctor, hlutu fleiri tilnefningar.
Instagram-reels hafa ekki eyðilagt upplifunina
Myndin var upphaflega framleidd á ensku en sérstök íslensk útgáfa var útbúin fyrir íslenskan markað.
Andri Snær segir að það hafi verið sérstök upplifun að sýna myndina hér heima á íslensku, en viðtökurnar hafi verið góðar.
„Mér finnst líka skemmtilegt að sjá viðbrögð ungs fólks, fólks á aldrinum 18 til 23 ára. Maður gæti haldið að yngsta kynslóðin, sem er vön að horfa á „reels“, hefði ekki þolinmæði til að fylgjast með mynd í einn og hálfan tíma um jökla og gamla fossa. En sú kynslóð er mjög snortin af myndinni,“ segir hann.
„Mér þykir mjög vænt um það. Ég held að galdurinn sé meðal annars sá að í myndinni er mikið af ömmum og öfum sem eru fædd á árunum 1919 til 1925. Alls staðar í kringum þau eru svo einhverjir krakkar að hlaupa. Þetta eru krakkar úr kynslóðinni sem er fædd frá því um 1997 til 2010. Sú kynslóð sér sig einhvern veginn í bakgrunninum og man eftir því að hafa haft þessa gömlu kynslóð í kringum sig, en kannski ekki alltaf veitt henni athygli eða tekið myndskeið af henni.“
Horft yfir Okið, fönnina sem þar til fyrir fáum árum var hægt að kalla jökul. mbl.is/RAX
Ný kynslóð þurfi að taka við keflinu
Talandi um yngri kynslóðina, þá er hún jafnframt sú kynslóð sem man ef til vill ekki eftir baráttunni um Kárahnjúkavirkjun. Hún hefur því ekki endilega upplifað þá hörðu náttúruverndarbaráttu sem þá stóð yfir á Íslandi. Hvernig sér Andri Snær framtíð þeirrar baráttu?
„Það hefur orðið ákveðin þróun síðan í hruninu. Eftir áratug græðginnar tók við tímabil þar sem orkuiðnaðurinn var tiltölulega rólegur. Nú virðist hins vegar mikill hugur í greininni að hefja nýja framkvæmdabylgju og hver einasta heiði virðist vera í hættu,“ segir hann.
„Ég held að ný kynslóð þurfi að bretta upp ermar og fylgjast betur með. Við höfum því miður oft haft rétt fyrir okkur í gagnrýninni. Kárahnjúkavirkjun hefur til dæmis ekki skilað þeim tekjum sem vænst var, kísilver hafa farið á hausinn og heilt álver sömuleiðis. Það þarf að fara að reikna út heildartjónið af þessari stóriðjustefnu – og þá er náttúran ekki einu sinni tekin með í reikninginn.“
Loftslagsbaráttan sé svo annar kapítuli. Honum finnist þjóðir heimsins vera að bregðast yngstu kynslóðinni og breytingarnar gerast hraðar en margir hafi áttað sig á.
Hann nefnir sem dæmi ferð sína til Nepal, þar sem hann vann með vísindamönnum að því að reisa minnismerki um Jala-jökulinn í maí 2025. Þar voru skilaboð hans til framtíðarinnar grafin á klöpp líkt og gert var til að minnast jökulsins Ok.
„Aðeins rúmu ári síðar hafði sú framtíð þegar raungerst, þegar skriða féll í Langtang-dalnum í nágrenninu. Það var sláandi áminning um hversu hratt breytingarnar eiga sér stað.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

