Tvær metnar hæfastar en gætu þurft að sækja aftur um
Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og María Káradóttir, starfandi lögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, eru metnar hæfastar til að gegna embættinu.
Þetta kemur fram í niðurstöðu hæfisnefndar.
Fram kemur að óvissa ríki um framtíð embættisins vegna áforma dómsmálaráðherra um umfangsmiklar breytingar á skipulagi lögreglunnar. Gæti því farið svo að sá sem nú verður skipaður lögreglustjóri þurfi að sækja um nýtt embætti innan skamms.
María gegnir nú embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu tímabundið en Margrét Kristín var skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum í júní síðastliðnum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tekur ákvörðun um skipun í embættið.
Tvö embætti verða eitt
Á sama tíma vinnur ráðherra að breytingum á skipulagi lögreglunnar sem fela í sér að lögregluembættum landsins verði fækkað úr níu í þrjú.
Samkvæmt áformunum verða embættin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sameinuð undir einum lögreglustjóra.
Verði breytingarnar að lögum gæti það því orðið skammt í að nýskipaður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu þurfi að taka þátt í öðru skipunarferli vegna nýs og stærra embættis.
Sex sóttu um embættið
Alls sóttu sex um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þegar það var auglýst í júní síðastliðnum.
Sex sóttu um embætti lögreglustjórans. Auk Maríu og Margrétar sóttu Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi Vestra, Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður í kærunefnd útlendinga, og Serhii Duiko, sjúkraliði, um starfið.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗