Grindavík enn með fullt hús stiga

Abby Beeman fór að vanda mikinn.

Abby Beeman fór að vanda mikinn. mbl.is/Karítas

Grindavík er enn með fullt hús stiga í toppsæti úrvalsdeildar kvenna í körfubolta eftir sigur á Stjörnunni, 96:81, í toppslag sjöundu umferðarinnar í Grindavík í kvöld. 

Grindavík er í toppsætinu með 14 stig eftir sjö leiki en Stjarnan er í þriðja sæti með tíu. 

Grindvíkingar voru fjórum stigum yfir í hálfleik, 42:38, og léku síðan á als oddi í þeim seinni sem tryggði liðinu 15 stiga sigur. 

Farhiya Abdi skoraði 23 stig, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar í liði Grindavíkur en Abby Beeman skoraði 16 stig, tók átta fráköst og gaf ellefu stoðsendingar. 

Hjá Stjörnunni skoraði Xaviera Alecandria Dyer 23 stig og tók 14 fráköst en Eva Wíum Elíasdóttir skoraði 22 stig, tók fjögur fráköst og gaf sjö stoðsendingar. 

Grindavík - Stjarnan 96:81

HS Orku-höllin, Bónus deild kvenna, 23. nóvember 2026.

Gangur leiksins:: 2:2, 8:4, 17:4, 21:12, 28:18, 33:24, 37:28, 42:38, 51:40, 57:44, 63:52, 67:59, 70:59, 77:63, 83:71, 96:81.

Grindavík: Farhiya Abdi 23/7 fráköst/6 stoðsendingar, Ellen Nystrom 20/6 fráköst, Tegan Graham 17/4 fráköst, Abby Claire Beeman 16/8 fráköst/11 stoðsendingar/3 varin skot, Isabella Ósk Sigurðardóttir 8/12 fráköst, Ólöf María Bergvinsdóttir 6, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 3, Hulda Björk Ólafsdóttir 3.

Fráköst: 32 í vörn, 8 í sókn.

Stjarnan: Xaviera Alexandria Dyer 23/14 fráköst, Eva Wium Elíasdóttir 22/4 fráköst/7 stoðsendingar, Stina Josefine Almqvist 18/6 fráköst, Elísabet Ólafsdóttir 7, Diljá Ögn Lárusdóttir 4, Bára Björk Óladóttir 3, Agnes María Svansdóttir 2, Eva Ingibjörg Óladóttir 2.

Fráköst: 20 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Birgir Örn Hjörvarsson, Aron Rúnarsson.

Áhorfendur: 105

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab