Unnu háspennuleik í Njarðvík
Haukar unnu útisigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur, 98:84, eftir æsispennandi framlengdan leik í sjöundu umferð úrvalsdeildar kvenna í körfubolta í Njarðvík í kvöld.
Haukakonur eru í öðru sæti deildarinnar með tíu stig eftir sigurinn en Njarðvík er í sjötta sæti með átta.
Venjulegum leiktíma lauk með 88:88-jafntefli eftir að Emma Theódórsson jafnaði metin fyrir Njarðvík undir lokin.
Haukar voru aftur á móti betri í framlengingunni, unnu hana 10:6, og leikinn 98:94.
Jadakiss Guinn fór mikinn fyrir Hauka en hún skoraði 30 stig, tók tíu fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Emma var stigahæst hjá Njarðvík en hún skoraði 24 stig ásamt því að taka ellefu fráköst.
Njarðvík - Haukar 94:98
IceMar-höllin, Bónus deild kvenna, 23. nóvember 2026.
Gangur leiksins:: 4:6, 5:11, 9:19, 21:21, 21:27, 29:29, 34:36, 41:39, 50:49, 58:53, 64:60, 69:65, 71:69, 77:74, 83:78, 88:88, 91:93, 94:98.
Njarðvík: Emma Grace Theódórsson 24/11 fráköst, Brittany Dinkins 21/9 fráköst/14 stoðsendingar/5 stolnir, Ásta Júlía Grímsdóttir 14/9 fráköst, Helena Rafnsdóttir 13/4 fráköst, Sara Björk Logadóttir 9, Kristín Björk Guðjónsdóttir 6, Hulda María Agnarsdóttir 5, Krista Gló Magnúsdóttir 2.
Fráköst: 25 í vörn, 16 í sókn.
Haukar: Jadakiss Nashi Guinn 30/10 fráköst/8 stoðsendingar, Eloise Stéphanie Pavrette 24/13 fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 15/6 stoðsendingar, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 15/4 fráköst/5 stoðsendingar, Sigrún Björg Ólafsdóttir 8, Rósa Björk Pétursdóttir 4, Inga Lea Ingadóttir 2.
Fráköst: 28 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Jón Þór Eyþórsson.
Áhorfendur: 200
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗