Brentford lék sér að Everton

Keane Lewis-Potter fór á kostum.

Keane Lewis-Potter fór á kostum. AFP/Adrian Dennis

Brentford vann stórsigur á Everton, 4:0, í lokaleik 11. umferðar ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta á Gtech-vellinum í Lundúnum í kvöld. 

Brentford fór upp fyrir Everton með sigrinum og er nú í sjötta sæti deildarinnar með 17 stig. Everton er aftur á móti í níunda sæti með 16. Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson er varamarkvörður Brentford. 

Keane Lewis-Potter kom Brentford yfir á 23. mínútu og bætti síðan við sínu öðru marki tveimur mínútum síðar, 2:0. 

Á 40. mínútu var James Tarkowski, fyrirliði Everton, rekinn af velli eftir athugun í VAR-sjánni en þá hafði hann farið með takkana í lærið á Yehor Yarmoliuk. 

Vitaly Janelt bætti við þriðja marki Brentford með glæsilegu skoti utan teigs á 67. mínútu og varamaðurinn Fábio Carvalho skoraði fjórða og síðasta mark liðsins undir blálok leiks, 4:0. 

Brentford heimsækir Manchester United í næstu umferð deildarinnar en Everton fær Liverpool í heimsókn í Bítlaborgarslagnum. Tarkowski, sem er fyrirliði Everton, verður í banni í þeim leik. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab