Standa þétt við bakið á Alonso

Xabi Alonso.

Xabi Alonso. AFP/Glyn Kirk

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea hafa fulla trú á Spánverjanum Xabi Alonso þrátt fyrir slæmt gengi að undanförnu. Engar viðræður hafa farið fram innan félagsins um að skipta um knattspyrnustjóra.

Chelsea laut í lægra haldi fyrir Leeds, 4:1, á Stamford Bridge á laugardaginn. Tapið var þungt fyrir Chelsea-menn sem hafa nú tapað fimm af fyrstu ellefu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Chelsea er í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig, tólf stigum á eftir toppliði Arsenal.

Þrátt fyrir úrslitin nýtur Alonso enn fulls stuðnings stjórnenda félagsins. Þeir telja Spánverjann réttan mann til að stýra liðinu og eru sannfærðir um að Chelsea muni taka framförum undir hans stjórn. Fabrizio Romano segir frá.

Alonso tók við starfinu í sumar og skrifaði undir fjögurra ára samning á Brúnni.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab