„Ég hefði náttúrulega ekki getað haft hvern sem var þarna við hliðina á mér, Marta mín,“

Óskar Magnússon er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim.

Óskar Magnússon er gestur í hlaðvarpinu Marta María býður heim. Morgunblaðið/Eggert

Þegar Óskar Magnússon réð Mörtu Maríu Winkel til starfa á Morgunblaðinu 2011 komu samstarfskonur hans á fund og spurðu hvort hann ætlaði að eyðileggja Morgunblaðið og mbl.is. „Bara alveg í fullri alvöru,“ segir Óskar, sem þá var útgefandi blaðsins. Nú er Smartland orðið 15 ára og Marta María situr á gömlu skrifstofunni hans. Óskar rifjar upp upphaf Smartlands í hlaðvarpinu Marta María býður heim. 

Nafnið þótti „ekki mjög Moggalegt“

Skiptar skoðanir voru um hvað vefurinn ætti að heita. Sumum þótti nafnið Smartland Mörtu Maríu tengja vefinn of náið við eina manneskju. Óskar segir að það hafi þótt „ekki mjög Moggalegt“.

Marta María man enn hvar þau stóðu þegar Óskar tók af skarið. Þau voru á kaffistofunni á efri hæðinni þegar hann sagði við hana: „Marta, ef þú vilt að þetta heiti Smartland þá heitir þetta Smartland og þetta þarf að heita Smartland Mörtu Maríu.“

Smartlandsfréttir rötuðu fljótlega í efstu sæti listans yfir mest lesnu fréttirnar á mbl.is. Óskar minnist þess að það hafi verið bæði skemmtilegt og dálítið pínlegt þegar þrjár eða fjórar efstu fréttirnar voru allar af Smartlandi.

„Það er mjög gaman oft að vera alveg við brúnina svo lengi sem maður fer ekki of oft fram af henni,“ segir Óskar.

Hjónin Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir og Óskar Magnússon.

Hjónin Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir og Óskar Magnússon. mbl.is/Styrmir Kári

Málaði skrifstofuna fjólubláa

Marta María sat um tíma við hliðina á skrifstofu Óskars. Þunnt þil skildi þau að og þau rifja upp að hún hafi heyrt ýmislegt úr símtölunum hans.

„Ég hefði náttúrulega ekki getað haft hvern sem var þarna við hliðina á mér, Marta mín,“ segir hann.

„Ég treysti þér.“

Eftir að Óskar lét af störfum tókst Mörtu Maríu að fá gömlu skrifstofuna hans undir sig og samstarfskonur sínar. Hún lét mála hana í einum af uppáhaldslitunum sínum og hafði um leið hugsað fyrir því hvernig hún gæti haldið henni. Ef nýr karl kæmi til starfa, segir hún og hlær, yrði of dýrt að mála hana aftur.

„Fannst þér það ekki klókt?“ spyr hún.

„Jú, þetta er snjallt,“ svarar Óskar.

Í þættinum segir Óskar líka frá því þegar hann kynntist Hrafnhildi Ingu Sigurðardóttur eiginkonu sinni á Óðali, hvernig Fljótshlíðin varð að heimili þeirra og hvers vegna hann vill að glæpasögurnar sínar fái lesendur til að hlæja. Hann ræðir einnig um Hvalamorð og lætur lesendum eftir að komast að því hvað verður um lögmanninn Stefán Bjarnason.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Davíð Oddsson og Óskar Magnússon árið 2013.

Davíð Oddsson og Óskar Magnússon árið 2013. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab