Fleiri múslimar en kristnir árið 2035?
Múslimar gætu verið orðnir um 50 milljónum fleiri en kristnir í heiminum árið 2035. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku rannsóknarstofnunarinnar Pew Research Center um þróun trúarbragða til ársins 2070.
Spáin byggist á þeirri forsendu að þróun síðustu ára varðandi mannfjölda haldi áfram í megindráttum.
Árið 2020 voru kristnir um 250 milljónum fleiri en múslimar. Þá voru um 2,27 milljarðar manna kristnir, eða um 29% jarðarbúa. Múslimar voru um 2,02 milljarðar, eða um 26%. Samkvæmt spánni verða múslimar um 2,57 milljarðar árið 2035 og kristnir um 2,52 milljarðar. Gangi spáin eftir verða múslimar rúmlega 3,6 milljarðar árið 2070 og kristnir tæpir þrír milljarðar.
Fáðu aðgang að þessari grein
Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn.
Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗