Skrúfa fyrir útflutning á lykilmálmi

Ákvörðun stjórnvalda í Kongó gæti haft áhrif á alþjóðlegan rafhlöðu- og rafbílamarkað. AFP/Marie Ruwet

Stjórnvöld í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hafa ákveðið að stöðva allan útflutning á kóbalti frá og með 30. nóvember til að draga úr offramboði og stemma stigu við verðlækkunum. Bannið gildir þar til annað verður ákveðið.

Kongó er stærsti kóbaltframleiðandi heims. Að mati bandarísku jarðfræðistofnunarinnar komu um 73% alls kóbalts sem unnið var úr námum í heiminum árið 2025 frá Kongó. Kóbalt er meðal annars notað í endurhlaðanlegar rafhlöður snjallsíma, fartölva og rafbíla.

Reuters greinir frá ákvörðuninni og vísar til tilkynningar frá eftirlitsstofnuninni ARECOMS. Bannið nær til alls kóbalts sem unnið er í landinu, bæði í stórum iðnaðarnámum og smærri námum.

Námuverkamaður bíður eftir að pokar með kopargrýti komi upp úr 110 metra djúpum námustokki í Kolwezi í Kongó. Í borginni er unnið bæði kopargrýti og kóbalt. AFP/Marie Ruwet

Bannið endurskoðað eftir fjóra mánuði

Að sögn ARECOMS hefur verð á kóbalti lækkað verulega frá því um mitt ár vegna dræmrar eftirspurnar, vaxandi birgða og spákaupmennsku. Stofnunin hyggst fara yfir úthlutun útflutningskvóta og endurskoða bannið að fjórum mánuðum liðnum. Sérstaka ákvörðun þarf þó til að útflutningur geti hafist á ný.

Þetta er í annað sinn á tæpum tveimur árum sem stjórnvöld í Kongó stöðva útflutning á málminum. Fyrra bannið tók gildi í febrúar 2025. Í október sama ár tók við kvótakerfi sem takmarkaði útflutninginn.

Kopar- og kóbaltnámur teygja sig víða undir íbúðahverfi í námuborginni Kolwezi í Kongó. AFP/Marie Ruwet

Rafhlöður án kóbalts í sókn

Hækki verð á kóbalti getur það aukið kostnað við framleiðslu rafhlaðna sem innihalda málminn. Að sögn Alþjóðaorkumálastofnunarinnar hafa sveiflur í kóbaltverði þó minni áhrif á framleiðslukostnað rafbílarafhlaðna en áður.

Ein skýringin er sú að sífellt fleiri rafbílar eru búnir kóbaltlausum rafhlöðum af svonefndri LFP-gerð. Árið 2025 var hlutdeild þeirra rúm 55%, miðað við samanlagða rafhlöðugetu nýskráðra rafbíla í heiminum.

Vinnuaðstæður í kóbaltnámum Kongó hafa einnig sætt gagnrýni. Í rannsókn Amnesty International og Afrewatch frá 2016 kom fram að börn allt niður í sjö ára aldur hefðu unnið við hættulegar aðstæður í kóbaltnámum landsins. mbl.is fjallaði um málið á sínum tíma. 

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab