Grand Theft Auto-hakkari dæmdur í sjö ára fangelsi

Grand Theft Auto VI kom út skömmu fyrir helgi.

Grand Theft Auto VI kom út skömmu fyrir helgi. AFP/Michael B. Santiago

Hakkari var í dag dæmdur til sjö ára fangelsisvistar í Bretlandi fyrir fjölda glæpa og þar á meðal netárásir.

Meðal þess sem hann hefur unnið sér til saka er að leka efni úr tölvuleiknum Grand Theft Auto VI einhverjum árum áður en hann kom út í síðustu viku.

Tölvuþrjóturinn er 21 árs gamall og heitir Ation Kurtaj. Hann er einhverfur og játaði sök í málinu. Kurtaj var laus úr haldi um leið og dómurinn féll þar sem hann hafði þegar afplánað í gæsluvarðhaldi í nokkur ár.

Glæpirnir áttu sér stað á árunum 2021 og 2022. Þá braust Kurtaj inn í tölvukerfi Rockstar, sem framleiðir GTA, skutlþjónustuna Uber og bankann Revolut svo dæmi séu tekin. 

„Þú ert augljóslega mjög hæfileikaríkur ungur maður,“ sagði dómarinn við Kurtaj við dómsuppkvaðninguna. „Ekki eyða restinni af lífinu í að fara inn og út úr fangelsum.“

Hakkarinn lak um 90 myndböndum af GTA VI undir nafninu TeaPotUberHacker. AFP/Ryan Murphy

Hakkaði Rockstar með símanum sínum

Kurtaj er greinilega hakkari en honum tókst að hakka Rockstar frá hótelherbergi, aðeins með síma, neti hótelsins og litlu streymistæki frá Amazon (e. firestick).

Þá tókst honum að verða sér úti um 90 myndskeið sem sýndu efni úr tölvuleiknum. Mikil leyndarhyggja ríkti yfir leiknum áður en hann kom út. Leikurinn var 13 ár í vinnslu. 

Rockstar varð að aðhafast og eyða um 190 milljónum króna vegna glæpsins að sögn dómarans. 

Kurtaj er meðal annars sagður hafa reynt að fjárkúga fyrirtækið með því að krefjast greiðslu ellegar myndi hann gefa út kóðann að leiknum.

Það gerði hann ekki en hann gaf út myndböndin á netinu undir notendanafninu „TeaPotUberHacker“.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab