Minni eldra fólks batnar milli kynslóða

Eldra fólk heldur minninu betur.

Eldra fólk heldur minninu betur. AFP

Fólk sem nú er að komast á efri ár virðist almennt hafa betra minni en fyrri kynslóðir höfðu á sama aldri. Þá benda niðurstöður nýrrar umfangsmikillar rannsóknar til þess að minninu hraki hægar með aldrinum en áður.

Vísindamenn telja að þróunin geti átt þátt í minnkandi nýgengi heilabilunar í Evrópu og Bandaríkjunum.

Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var í vísindatímaritinu Nature Medicine.

Vísindamenn greindu um 783 þúsund minnispróf frá um 219 þúsund einstaklingum, 50 ára og eldri, sem fæddust á árunum 1910 til 1964. Gögnin komu úr fimm langtímarannsóknum í Evrópu og Bandaríkjunum og náðu yfir allt að 30 ára tímabil.

Niðurstöðurnar sýna að þeir sem fæddust síðar á tuttugustu öld komu almennt betur út úr minnisprófum á efri árum en þeir sem fæddust fyrr. Þá reyndist minnisgetu yngri kynslóðanna hraka hægar með aldrinum.

Betra minni og hægari hnignun

Rannsakendurnir segja yngri kynslóðir því njóta tvöfalds ávinnings. Þær komi til elliára með betra minni og haldi því jafnframt lengur.

Samkvæmt fyrri rannsóknum hefur nýgengi heilabilunar minnkað um 13% á áratug í Evrópu og Bandaríkjunum. Höfundar nýju rannsóknarinnar telja að bætt minnisgeta og hægari hnignun hennar geti átt þátt í þeirri þróun.

Vísindamennirnir telja líklegt að bætt menntun, heilsufar og lífsskilyrði milli kynslóða hafi áhrif á niðurstöðurnar, þótt rannsóknin sýni ekki fram á hvaða þættir ráði mestu.

Missa minnisgetu hægar

Anders M. Fjell, prófessor við Óslóarháskóla og aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir niðurstöðurnar benda til þess að nýjar kynslóðir komi ekki aðeins til elliára með betra minni heldur missi þær minnisgetuna hægar en fyrri kynslóðir.

Að mati rannsakendanna sýnir þetta að hnignun minnis með aldrinum sé að einhverju leyti mótanleg af aðstæðum fólks yfir ævina.

Þótt niðurstöðurnar séu jákvæðar þýða þær ekki að heilabilun sé að hverfa. Heildarfjöldi þeirra sem glíma við sjúkdóminn getur áfram aukist eftir því sem eldra fólki fjölgar.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab