Á braut um Merkúríus þrátt fyrir bilun á ögurstundu
Geimfarið hefur verið átta ár á leið til Merkúríus. NASA/Johns Hopkins University Applied Physics Laboratory/Carnegie Institution of Washington
Geimfarið BepiColombo hefur komist á braut um Merkúríus eftir átta ára ferðalag, þrátt fyrir að hugbúnaðarbilun hafi orðið til þess að hreyflar þess stöðvuðust fyrr en áætlað var.
Stjórnendur leiðangursins segja geimfarið öruggt og stefna að því að rannsóknir á reikistjörnunni hefjist í apríl á næsta ári.
Geimfarið komst á braut um Merkúríus laugardaginn 21. nóvember. BepiColombo er samstarfsverkefni Geimferðastofnunar Evrópu (ESA) og japönsku geimferðastofnunarinnar JAXA.
Til stóð að fjórir hreyflar geimfarsins yrðu ræstir í 37 mínútur til að hægja nægilega á því svo það kæmist á stöðuga braut um reikistjörnuna.
Hreyflarnir voru ræstir þegar geimfarið var í aðeins 635 kílómetra hæð yfir yfirborði Merkúríusar. Þegar samband náðist aftur við það kom hins vegar í ljós að það hafði farið í öryggisham eftir að hreyflarnir stöðvuðust fyrr en áætlað var.
Náði aðeins 77% af fyrirhugaðri hraðabreytingu
Stjórnendur leiðangursins við geimstjórnstöð ESA í Darmstadt í Þýskalandi hófu þegar rannsókn á því hvað hefði gerst.
Í ljós kom að geimfarið hafði aðeins náð um 77% af fyrirhugaðri hraðabreytingu. Óvissa ríkti því um hvort það hefði komist á braut um Merkúríus, en eftir ítarlega úrvinnslu gagna staðfestu sérfræðingar að svo væri.
„Við staðfestum að geimfarið hefur náð braut um Merkúríus,“ tilkynnti Frank Budnik, yfirmaður brautarútreikninga BepiColombo hjá ESA.
Bilunin hefur verið rakin til hugbúnaðarvanda sem tengist stefnustýringu geimfarsins og stjórnun hreyflanna.
Átta ára ferðalag
BepiColombo hefur verið á ferðalagi í átta ár. Á leiðinni nýtti geimfarið þyngdarafl reikistjarna í níu framhjáflugum til að draga úr hraða sínum.
Leiðangurinn markar jafnframt tímamót þar sem geimfar komst í fyrsta sinn á braut um aðra reikistjörnu með aðferð sem byggist á veikri þyngdaraflsbindingu. Aðferðin hefur áður verið notuð við ferðir til tunglsins.
Þrátt fyrir bilunina segja stjórnendur að hún hafi ekki áhrif á helstu næstu áfanga verkefnisins. Braut geimfarsins um Merkúríus tekur nú um 75 klukkustundir í stað fyrirhugaðra 58 klukkustunda.
Rannsóknir hefjast í apríl
Stefnt er að því að tvö rannsóknargeimför BepiColombo verði aðskilin 9. desember. Annað er á vegum ESA og hitt á vegum japönsku geimferðastofnunarinnar.
Evrópska geimfarið á síðan að komast á fyrirhugaða rannsóknarbraut fyrir marslok 2027.
Vísindarannsóknir hefjast samkvæmt áætlun í apríl. Um 600 vísindamenn taka þátt í verkefninu, sem miðar meðal annars að því að rannsaka innri gerð Merkúríusar, yfirborð reikistjörnunnar og geimumhverfið í kringum hana.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗