Eldlistamaður féll af sviðinu á tónleikum
Óhugnanlegt atvik átti sér stað á tónleikum söngvaranna Usher og Chris Brown í New Orleans um helgina þegar eldlistamaður féll af sviðinu með logandi kyndla í höndunum. Atvikið náðist á myndband og hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Atvikið átti sér stað laugardaginn 21. nóvember á tónleikum tónlistarmannanna í Caesars Superdome í New Orleans, þar sem þeir komu fram á sameiginlegri tónleikaferð sinni, Raymond & Brown R&B Tour.
Á myndskeiðum sem tónleikagestir tóku má sjá eldlistamann sveifla tveimur logandi kyndlum áður en hann missir jafnvægið og fellur niður nokkrar tröppur við sviðið. Í kjölfarið virðist hann umkringdur eldi og reyk í nokkrar sekúndur.
Sem betur fer virðist listamaðurinn hafa sloppið vel frá óhappinu. Á myndskeiðunum sést hann rísa fljótt á fætur, ganga aftur upp á sviðið og halda atriðinu áfram eins og ekkert hafi í skorist. Ekki hefur þó verið staðfest hvort hann hafi slasast.
Fulltrúar Usher, Chris Brown og tónleikahaldarans Live Nation höfðu ekki svarað fyrirspurnum bandaríska tímaritsins People um atvikið þegar fréttin var birt.
Tónleikaferð þeirra félaga hófst í júní og stendur yfir fram í desember. Ýmis atvik hafa vakið athygli á ferðinni en þetta er án efa eitt það sem hefur vakið mesta athygli.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
