„Ég kolféll fyrir þessari konu“

Björgvin Franz Gíslason og Bryndís Guðjónsdóttir.

Björgvin Franz Gíslason og Bryndís Guðjónsdóttir. mbl.is/Ólafur Árdal

Björgvin Franz Gíslason leikari og Bryndís Guðjónsdóttir óperusöngkona fundu ástina fyrir ári síðan. Leikarinn ákvað að skrifa væmna færslu á samfélagsmiðlum í tilefni þess að þau fögnuðu sambandsafmæli á dögunum. 

„Það er nákvæmlega ár síðan að ég kolféll fyrir þessari konu á göngum Borgarleikhússins þegar hún var að æfa La Boheme klædd eins og hefðardama,“ skrifaði Björgvin Franz. Hann sagði Bryndísi hafa verið gullfallega í búningnum úr óperunni en hann hafi hins vegar ekki verið eins falleg skvísa sem Elsa Lund. 

Hefur þroskast

Hann hélt áfram að tala vel um kærustu sína. 

„Síðan hún kom inn í líf mitt hefur hún fyllt það af stanslausri gleði, húmor og kærleika frá því hún vaknar og þangað til hún fer að sofa. Hún hefur hjálpað mér að vaxa og þroskast á hraða sem ég skil ekki og hugsar alltaf um aðra fyrst, hvernig hún geti glatt fólk og létt því lífið. Hún elskar fjölskyldu mína og sinnir henni meira að segja betur en ég. Í kaupbæti fæ ég að njóta samneytis við hina dásamlega fjölskyldu hennar sem gerir nákvæmlega það sama og Bryndís; peppar, elskar og styður í hvívetna.“

Ævintýri þerra Björgvins og Bryndísar er greinilega rétt að hefjast ef marka má lokaorðin í færslu hans. 

„Vonandi er þetta bara eitt af mörgum árum sem við eigum framundan því lífið er svo miklu betra með þér.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab