Þrettán stjórnendastörf aðeins auglýst innan forgangshóps
Magnús Kristjánsson, forstjóri Stofnunar atvinnuveganna, leiðir undirbúning nýrrar stofnunar sem tekur við verkefnum Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs um áramótin. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Eggert Jóhannesson
Þrettán stjórnendastörf hjá Stofnun atvinnuveganna voru eingöngu auglýst meðal starfsfólks sem nýtur lögbundins forgangsréttar til starfa hjá nýju stofnuninni. Alls bárust 52 umsóknir frá 36 einstaklingum.
Í ábendingu til mbl.is er gagnrýnt að störfin hafi ekki verið auglýst á Starfatorgi. Þar er bent á að fólk með sérþekkingu á þessum sviðum starfi einnig utan þeirra stofnana sem forgangsrétturinn nær til. Það fólk hefði að mati sendanda átt að fá kost á að sækja um.
Magnús Kristjánsson, forstjóri Stofnunar atvinnuveganna, segir í samtali við mbl.is að fyrirkomulagið sé í samræmi við lög um stofnunina. Allir sem njóta forgangsréttar hafi getað sótt um öll þrettán störfin. Hann kveðst ekki hafa orðið var við óánægju með að störfin hafi aðeins verið auglýst innan hópsins.
Ein umsókn um starf yfirdýralæknis
Um er að ræða fjögur störf á framkvæmdastjórnarstigi og níu deildarstjórastörf. Umsóknarfrestur rann út 16. nóvember og ráðningarviðtöl standa nú yfir, að sögn Magnúsar.
Flestir sóttu um starf framkvæmdastjóra fag- og eftirlitssviðs, eða átta. Áætlað er að um 140 stöðugildi verði á sviðinu.
Sjö sóttu um starf deildarstjóra matvælaöryggis og jafnmargir um starf deildarstjóra fiskveiðistjórnunar.
Þóra Jónasdóttir yfirdýralæknir var eini umsækjandinn um starf yfirdýralæknis hjá nýju stofnuninni.
Undanþága frá auglýsingaskyldu
Öll störf hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs verða lögð niður um áramótin þegar Stofnun atvinnuveganna tekur til starfa.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum um nýju stofnunina á starfsfólk þessara þriggja stofnana sem sinnir verkefnum sem flytjast til hennar forgangsrétt til starfa að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Rétturinn nær einnig til starfsfólks heilbrigðisnefnda sveitarfélaga sem hefur sinnt matvælaeftirliti og uppfyllir skilyrði laganna.
Almenn auglýsingaskylda vegna lausra starfa hjá ríkinu gildir ekki um ráðningar samkvæmt ákvæðinu. Viðskiptaráð Íslands gagnrýndi undanþáguna í umsögn um frumvarpið í apríl og taldi hana takmarka samkeppni um störfin.
Embætti forstjóra stofnunarinnar var auglýst opinberlega. Þrettán sóttu um embættið og lagði hæfnisnefnd mat á hæfni tólf umsækjenda.
Magnús var skipaður í embættið í lok september.
Óvissa meðal starfsfólks
Þótt Magnús segist ekki hafa orðið var við óánægju með fyrirkomulag auglýsinganna hefur hann heyrt af óánægju meðal starfsfólks með hversu langan tíma ráðningarnar taki.
Enn ríki óvissa um hvort fólki bjóðist starf hjá nýju stofnuninni og þá hvaða starf. Hann kveðst skilja þá óvissu og segir unnið að því að fólk fái svör sem fyrst.
Í september sóttu um 120 félagsmenn fund þar sem kallað var eftir skýrum svörum frá ráðherra um framtíðarstörf, starfsstöðvar og kjör.
Heilbrigðisfulltrúar hafa einnig lýst óánægju með undirbúning breytinganna og skort á samráði.
Magnús segir undirbúning nýju stofnunarinnar ganga vel þótt hann hefði viljað vera kominn lengra. Þegar búið sé að ráða stjórnendur verði hægt að hraða öðrum verkefnum.
Jafnframt sé unnið að því að ráða um 20 starfsmenn frá heilbrigðiseftirlitunum. Nær öllum hafi þegar verið sent ráðningartilboð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗