Óhugsandi að ganga inn án atkvæðagreiðslu
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir óhugsandi að ganga aftur í Evrópusambandið án þjóðaratkvæðagreiðslu og sakar forvera sína í starfi, sem hafa varað hann við að blása nýju lífi í umræðuna um Brexit, um að vera fasta í fortíðinni.
Burnham hefur á undanförnum vikum rofið samstöðu um að útganga Bretlands úr Evrópusambandinu hafi verið endanlega afgreidd og viðrað þann möguleika að Bretland gæti sótt um aðild að nýju.
Bretar samþykktu naumlega árið 2016 að yfirgefa sambandið. Nú eru stuðningsmenn Brexit hins vegar farnir að skipuleggja sig upp á nýtt til að búa sig undir líkleg átök fram undan en Burnham hefur heitið því að kynna valkosti um langtímasamband Bretlands við ESB.
Þegar hann var spurður á breska þinginu í dag hvort hann myndi lýsa því yfir skýrt og afdráttarlaust að það væri óhugsandi að leiða Bretland aftur inn í ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu svaraði Burnham: „Já, það væri óhugsandi.“
Undanfarna daga hafa fyrrverandi forsætisráðherrar Íhaldsflokksins, Rishi Sunak, Theresa May, David Cameron og Boris Johnson, allir hvatt Burnham, leiðtoga Verkamannaflokksins, til að ýfa ekki upp gömul sár.
„Þeir sem segja að við ættum ekki að ræða Brexit eiga á hættu að skilja Bretland eftir fast í fortíðinni með ófullnægjandi fyrirkomulag,“ sagði Burnham á þinginu.
„Þess í stað erum við að koma Bretlandi aftur á betri braut og endurvekja þá von sem hefur vantað allt of lengi.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗