Fyrirsætan gengur enn lengra en áður - Alveg nakin í nýjustu myndatökunni

433

Mánudaginn 23. nóvember 2026 20:30

Apollonia Llewellyn - Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Apollonia Llewellyn hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum með því að birta djarfar myndir af sér í baðkari.

Llewellyn, sem hefur meðal annars setið fyrir hjá Playboy, birti myndirnar á Instagram þar sem hún sat nakin í baðkari og las tískutímaritið Vogue.

„Minn tími,“ skrifaði hún við myndirnar sem voru teknar á fimm stjörnu lúxushótelinu Grantley Hall í Yorkshire á Englandi.

Llewellyn er kærasta knattspyrnumannsins Jai Rowe, sem leikur með Raith Rovers í skosku B-deildinni, en hún er í raun þekktari en knattspyrnukappinn.

Fyrirsætan er dugleg að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum og hefur meðal annars vakið athygli fyrir djarfan klæðaburð. Ofangreind myndataka hefur þó vakið sérstaka athygli.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab